Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði: „Þegar 200 milljónir í plús breyttust í 2000 milljónir í mínus“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Ingi Hákonarson oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar skrifar grein er ber yfirskriftina: Af­komu­við­vörun!!!!

Undirtitillinn er: Þegar rúmlega 200 milljónir í plús breyttust í tæpar 2000 milljónir í mínus.

„Hvernig færir maður fólki slæmar fréttir? Með því að koma sér beint að efninu. Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðar er EKKI jákvæð um 250 milljónir eins og ársreikningur bæjarins greinir frá. Rekstrarniðurstaðan fyrir síðasta ár er halli upp á 1,8 milljarða króna. Hér skeikar rúmum tvö þúsund milljónum króna. Hvernig má það vera? Ástæðan er sú að Hafnarfjarðarbær gerir upp sinn rekstur á annan hátt en önnur sveitarfélög. Hafnarjarðarbær notar aðra mælikvarða.“

Hann bætir við:

„Þetta er í raun sáraeinfalt. Hafnarfjarðarbær telur gatnagerðargjöld til rekstrartekna en önnur sveitarfélög gera það ekki. Gatnagerðargjöld upp á rúma tvo milljarða eru taldar fram sem rekstrartekjur og skekkja þannig myndina. Samkvæmt 11 gr. reglugerðar um ársreikninga sveitarfélaga segir að gatnagerðargjöld eigi ekki að færa til rekstrar, þau eiga koma til frádráttar á fjárfestingum. Hafnarfjarðarbær hefur innheimt gatnagerðargjöld fyrirfram og notað þau til að greiða niður grunnrekstur bæjarins. Grunnrekstur bæjarins er ósjálfbær um tæpa tvo milljarða.“

Jón Ingi færir í tal að „það er rétt að skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar hafi lækkað. Það eru hins vegar sjónhverfingar, því í stað þess að taka lán í bankanum vegna hallarekstursins þá höfum við tekið lán hjá íbúum bæjarins. Í raun hefur myndast innviðaskuld.

- Auglýsing -

Gatnagerðargjöldin sem við höfum innheimt fyrirfram krefjast framkvæmda á móti, þær framkvæmdir koma til sögunnar á þessu ári og því næsta. Þá munum við þurfa fjármagn, hvaðan það mun koma veit ég ekki.

Þrjár leiðir eru færar, hækkun skatta, lántaka eða eignasala. Ef þér, kæri lesandi, finnst þetta ekki vera nógu slæmt þá vil ég benda á þá sturluðu staðreynd en, samkvæmt ársreikningi, þurfti bærinn að greiða með rekstrinum rúma 4 milljarða króna. Ég á erfitt með að trúa því að þetta sé raunin. Innst inni vona ég að gerð hafi verið mistök og að þau verði leiðrétt.“

Hann nefnir að „handbært fé frá rekstri Hafnarfjarðarbæjar á síðasta ári voru 4 milljarðar í mínus. Með öðrum orðum þurfti að borga 4 milljarða með rekstrinum á síðasta ári. Handbært fé frá rekstri segir okkur hvað reksturinn skilar miklum peningum til að greiða niður skuldir og til að fjárfesta. Til samanburðar þurfti Reykjavíkurborg að greiða 3 milljarða með sínum rekstri en Borgin er fjórum sinnum stærri en Hafnarfjörður. Ef Reykjavík hefði notast við sömu aðferðafræði og Hafnarfjörður, hefði niðurstaðan þar skánað um tæpa tvo milljarða.

- Auglýsing -

Þannig að ef fólk hefur verið að hneykslast á rekstri Reykjavíkurborgar, sem vissulega er mikið áhyggjuefni, þá þarf að hafa miklar áhyggjur af rekstri Hafnarfjarðar.“

Jón Ingi vill taka það fram að hér sé ekki verið að brjóta lög, „sveigjanleiki í framsetningu ársreikninga er leyfilegur að vissu marki. Aftur á móti er það andi þessara laga og reglna að hafa uppgjör sveitarfélaga þannig, að hægt sé að bera þau saman með einföldum hætti. Það skiptir mjög miklu máli að geta séð með skýrum hætti hvernig okkur gengur í hinum þremur þáttum rekstrarins sem eru grunnrekstur, fjárfestingar og fjármögnun.

Það hjálpar ekki að blanda saman ólíkum þáttum í einn graut því þá missir maður yfirsýn og voðinn vís.

Hvernig sýnir maður fram á ábyrga fjármálastjórn? Í fyrsta og síðasta lagi nýtir maður sér bestu upplýsingar sem völ er á til að átta sig á raunstöðu. Út frá henni er hægt að taka ábyrgar ákvarðanir. Það að fela hallrekstur með bókhaldsbrellum er ekki ábyrg fjármálastjórn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -