Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Halldór Benjamín Þorbergsson, segir í samtali við ruv.is að það sé ómögulegt að auka kaupmátt við þær aðstæður sem nú er að finna í íslensku samfélagi.
Núna eru kjaraviðræður haustsins og vetrarins komnar á fullan skrið:
„Við erum búin að taka á móti öllum kröfugerðum stéttarfélaganna, það eru fjöldamargir liðir þar sem eru kostnaðarliðir. Það fer svolítið eftir því hvernig þeim vindur fram í þessum kjaraviðræðum. Það þarf að horfa á þetta í heild sinni, alls konar kröfur sem við erum að fara í gegnum núna og er beinlínis hlutverk okkar á þessum fundum.“
Bætir við:
„Hins vegar sjáum við ef við skoðum aðeins söguna, við erum í tæplega tíu prósent verðbólgu, sagan hefur kennt okkur að það er nánast ógjörningur að bæta kaupmátt í tíu prósent verðbólgu. Með réttum aðgerðum munum við ná tökum á verðbólgunni en það þarf lítið til að misstíga sig og skilaboð mín eru einföld og skýr, lærum af sögunni, stígum eitt skref til baka núna og sækjum síðan fram í sameiningu á næstu misserum og árum.“
SA og VR eru að ræða saman; vonast er til að samningar náist á næstu vikum; mögulega um miðjan næsta mánuð.
Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur látið eftir sér hafa að það sé stærsta stéttarfélagið og hann telji það í góðri stöðu til að ná fram hagstæðri niðurstöðu; það sé forgangsverkefni.
Segja má að Verkalýðshreyfingin sé enn í sárum eftir að formenn stærstu aðildarfélaganna gengu af þingi ASÍ um daginn; því var þinginu frestað fram á vor.
Halldór Benjamín segir ástandið innan verkalýðshreyfingarinnar litlu sem engu máli skipta þegar kemur að kjaraviðræðum:
„Við erum ennþá á sama stað, viðmælendur er ennþá þeir sömu og við munum sjá vonandi á næstu vikum hvort þetta náist saman eða ekki.“