Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ögmundur Jónasson: „Ég sagði af mér til að bjarga stjórninni – reyndist mér erfið ákvörðun“

Mynd. Skjáskot/RÚV
Mynd. Skjáskot/RÚV

„Þetta er mín sýn á sögu stjórn­mála og félags­mála síðustu rúma fjóra áratugina,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrr­verandi ráðherra og þingmaður, um sjálfs­ævisögu sína, Rauða þráðinn, sem kemur út í janúar. „Persónu­saga mín er þarna einhvers staðar líka en þó aðeins að því marki sem hún fléttast inn í afskipti mín af félags­málum og pólitík frá því ég steig inn á þann vettvang undir lok áttunda áratugarins. Þannig að þetta fer að teygja sig í hálfa öld. Ég segi í upphafi bókar frá því úr hverju ég er gerður; hvað það er sem býr til lífs­þráðinn hjá mér – sem er nátt­úrlega rauður á litinn. Ég fylgi þessum þræði síðan og það segja mér þeir sem lesið hafa bókina, sem að vísu eru ekki margir enn því offisíalt kemur hún ekki út fyrr en 1. janúar, að samfellan í þræðinum sé augljós frá upphafi og fram á þennan dag. Það er nú eiginlega það sem mér finnst skipta mestu máli að vera sjálfum sér samkvæmur en þó tilbúinn að laga sig að breyttum aðstæðum.“

Það vildi ég að sjálf­sögðu í öðrum köflum líka en þarna vildi ég vanda sér­stak­lega til því margt hefur verið mis­sagt um Icesave sem þurfti að leið­rétta.

Ögmundur segir að bókin sé búin að malla lengi sem óljós áform. „Ég skrifaði hana nánast í einum rykk á árinu sem leið. Tvennt tók tíma. Í fyrsta lagi að fara rækilega í saumana á heimildum fyrir þá kafla þar sem ég vildi gerast sagn­fræðingur. Það á sérstak­lega við um Icesave- deiluna. Þar vildi ég vera eins nákvæmur og kostur er. Það vildi ég að sjálfsögðu í öðrum köflum líka en þarna vildi ég vanda sérstak­lega til því margt hefur verið missagt um Icesave sem þurfti að leiðrétta. Hitt sem tók tíma var að finna myndefni. En það tókst með hjálp góðra manna.“

BSRB-ganga.

Villikettirnir

Ögmundur er spurður hvað standi upp úr á ferli hans.
„Þegar ég var í Sjón­varpinu, formaður starfsmanna­félagsins þar, hengdum við upp skilti sem á stóð að fleiri væru menn en yfirmenn en að stundum þyrfti að minna á það. Það síðastnefnda, um áminninguna, var í sviga á eftir. Ég birti mynd af þessu skilti. En þarna var sú herhvöt sem ég hef alla tíð látið stjórnast af. Það sem stendur upp úr er að ég skuli ekki hafa gleymt þessari grundvallar­afstöðu til samferða­manna minna og samfélagsins að enginn skuli öðrum ofar settur. Um hefð­bundnar hæðir og lægðir þá stendur upp úr á minni pólitísku vegferð hve marg­breytileg hún hefur verið, allt frá Sigtúns­hópnum, verkfallsátökum á níunda áratugnum og svo nátt­úrlega pólitískum slags­málum í gegnum tíðina.“

Erfiðust eru átök við vini og sam­herja.

Hvað var erfiðast?
„Erfiðust eru átök við vini og samherja. Á því leikur enginn vafi.“

Þegar Ögmundur er spurður hvað hafi einkennt hann sem stjórn­málamann segist hann vona að mönnum finnist hann hafa verið samkvæmur sjálfum sér; sagt það sama fyrir og eftir kosningar.“

Talið berst að Steingrími J. og deilunum innan VG.
„Orða­tiltækið að vík verði milli vina hygg ég að hafi átt þarna fullkomlega við. Og þessi vík varð meira að segja djúp og illfær yfir. Hvað síðar verður veit ég ekki en á síðari hluta kjör­tímabilsins 2009 til 2013 höfðu komið upp ágreiningsmál, ekki bara á milli mín og Steingríms og þeirra sem fylgdu honum að málum heldur einnig annarra félaga okkar. Þannig að þetta urðu átök sem margir komu að og fyrir vikið urðu margir sárir áður en yfir lauk.“

Svo voru það villikettirnir.

„Það var Jóhanna Sigurðar­dóttir sem uppnefndi okkur á þennan hátt en bjó þar með til andstæðuna sem einnig kom úr dýra­ríkinu, nefnilega sauðkindina. Hinn pólitíski sauður er skelfilegt fyrirbæri. Köttum smalar þú ekki svo glatt og það var áhyggju­efni Jóhönnu en sauðirnir rekast vel í rétt. Í því er mikil hætta fólgin en það er að gera þátt­takendur í stjórn­málum að gagnrýnis­lausri hjörð. Það var alltaf látið sem svo að villikettirnir í stjórnar­liðinu – þau sem höfðu uppi gagnrýni – væru fá. Reyndin var sú að í grasrót stjórn­málanna vorum við mörg og sennilega í meirihluta þótt inni í flokks­stofnunum værum við færri.“

Ég sagði af mér til að bjarga stjórn­inni.

Svo sagði Ögmundur af sér sem heilbrigðis­ráðherra.

„Ég sagði af mér til að bjarga stjórninni. Jóhanna sagði stjórnina fallna nema við töluðum einum rómi í Icesave. Það vildi ég ekki gera. Hvorki láta af sannfæringu minni né fella stjórnina. Þess vegna sagði ég af mér.“

Var erfitt að hætta?
„Fyrst í stað reyndist mér það erfið ákvörðun. En ég vissi innst inni að ég átti að hætta á þeim vettvangi þar sem ég hafði haldið mig í rúm tuttugu ár, það er Alþingi. En ég er ekkert hættur, hef verið á fullu í margs konar málum, innanlands og utan, og horfi glaðbeittur til fram­tíðarinnar.“

Hvað með skoðun ráðherrans fyrr­verandi á forsætis­ráðherranum?
„Ég gagnrýni Katrínu fyrir að kúvenda í utan­ríkismálum og gerast of fylgispök við markaðs­hyggju Evrópu­sambandsins.“

Vinstri menn þurfa að finna rætur sínar og verða ekki við­skila við þær.

Hvað með VG? Er flokkurinn kominn út af í stefnunni? Ekki svo grænn og ekki svo til vinstri?
„Tvímæla­laust. Vinstri menn þurfa að finna rætur sínar og verða ekki viðskila við þær. Það má ekki henda að VG, Vinstri­hreyfingin grænt framboð, endi uppi sem HF, Hreyfingin framboð.“

Hvað fannst Ögmundi um sósíal­ista?
„Ásetningurinn er góður en utan­ríkis­pólitíkina vantar.“

Árið 2021 er senn á enda. Hvað segir Ögmundur um áramót?
„Komandi ár verður betra en það sem nú er að líða. Ég hef trú á því. Ef við sem viljum veg hins rauða og græna í stjórn­málum sem mestan leggjum okkur fram þá mun landið rísa. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf alltaf gerendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim