Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Ólafur Helgi fjarlægður af Suðurnesjum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur verið fluttur til í starfi. Hann mun taka við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu um næstu mánaðamót. Þetta kemur fram á vef dómstólaráðuneytisins.

RÚV greindi fyrir nokkrum vikum frá því að Áslaug Arna hefði á borði sínu kvartanir vegna framgöngu Ólafs í starfi. Tveir starfsmenn embættisins eru sagðir hafa leitað til trúnaðarmanns, sem bar erindi þeirra til ráðherrans í maí síðastliðnum.

Mikil ólga hefur ríkt innan embættis Lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarið Tveir starfsmenn hafa kvartað undan Ólafi Helga og svo hafa aðrir tveir kvartað undan einelti af hálfu tveggja yfirmanna embættisins. Ólafur Helgi er meðal annars sakaður um að hafa prentað út klúran texta í miðlægum prentara á lögreglustöðinni við Brekkustíg í Njarðvík.

Yfirlýsing í heild sinni:

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur tekið við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu um næstu mánaðamót. Flutningur Ólafs er á grundvelli ákvæðis 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en ákvæðinu var breytt árið 2016, m.a. í því skyni að gefa skipuðum forstöðumönnum ríkisins færi á að flytja sig í annað starf og auka þannig hreyfanleika forstöðumanna, m.a. í tengslum við starfslok. Flutningurinn gefur ráðuneytinu og lögreglunni færi á að nýta sérþekkingu hans og reynslu á sviði landamæravörslu næstu árin, sérstaklega þegar kemur að Schengen samstarfinu og þeirri margvíslegu samvinnu Schengen ríkjanna á sviði landamæragæslu sem hefur verið byggð upp innan Frontex landamærastofnunarinnar.

Þá hefur dómsmálaráðherra ákveðið að Grímur Hergeirsson, staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi, verði tímabundið settur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum, frá 1. september til 1. nóvember nk. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, mun gegna stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá embættinu á sama tímabili. Embættið verður auglýst laust til umsóknar við fyrstu hentugleika.

- Auglýsing -

Grímur Hergeirsson lauk prófi frá lögregluskóla ríkisins 1998 og starfaði sem lögreglumaður og rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglustjóranum á Selfossi til ársins 2004. Lauk meistaraprófi í lögfræði frá HÍ 2009 og málflutningsréttindum fyrir héraðsdómi sama ár. Hann var starfandi lögmaður til ársins 2014 og frá þeim tíma löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Selfossi og frá 2015 hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi. Grímur hefur verið yfirlögfræðingur ákærusviðs og staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi frá 1. apríl 2017 og var settur lögreglustjóri á Suðurlandi frá 1. janúar-15 mars 2020.

Margrét Kristín Pálsdóttir lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu (áður innanríkisráðuneyti) frá árinu 2012 þar sem hún hefur að meginstefnu sinnt verkefnum tengdum málefnum lögreglu og landamæra. Árið 2019 starfaði Margrét tímabundið hjá ríkislögreglustjóra við að setja á fót nýja landamæradeild innan embættisins auk þess sem Margrét var settur aðstoðarríkislögreglustjóri frá 1. janúar til 15. mars 2020

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -