Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Olga Druyanova: „Við berjumst til að stöðva útbreiðslu krabbameins alræðis yfir til Vesturlanda“

Olga Druyanova: „Við berjumst til að stöðva útbreiðslu krabbameins alræðis yfir til Vesturlanda“
Golda Dru­ya­nova

„Ég virk­aði róleg út á við, en lík­ami minn sýndi streitu­merki jafn­vel þótt ég við­ur­kenndi það ekki. Ég gat ekki sofið í meira en tvo tíma á sól­ar­hring, ég borð­aði næstum ekki neitt og ég var með skjálfta í hand­leggjum og fótum,“ segir Olga Dru­ya­nova, úkra­ínsk kona sem kom hingað til lands eftir að Rússar réð­ust inn í Úkraínu.

Olga segir að hún sé ekki týpa sem gráti og sýni sorg og hræðslu. „Ef upp koma vanda­mál þá ein­beiti ég mér að lausn­inni. Vanda­málið í þessu til­viki er stríð sem kom inn í líf mitt þannig að ég leit­aði að upp­lýs­ingum varð­andi það hvað ég gæti gert í fram­hald­inu og hvort eitt­hvað benti til þess að stríðið myndi ekki standa lengi yfir. Það virk­aði þannig fyrstu vik­urnar. Ég reyndi einnig sjálf að gera það besta úr hlut­unum. Þar sem ég vann sem sér­fræð­ingur í upp­lýs­inga­tækni fylgd­ist ég meðal ann­ars með spjall­síðum á svæð­inu, fylgd­ist með upp­lýs­ingum og hjálp­aði fólki við að kom­ast í sam­band við rétta aðila varð­andi brott­flutn­ing.“

Olga segir að það hafi verið sárs­auka­fullt að sjá rústir bygg­inga.

Olga seg­ist ekki hafa séð sært eða látið fólk með berum augum, en hún fylgd­ist með fjöl­miðlum og sá þar myndir af látnu fólki í borg­inni sem hún bjó í, Kharkiv, sem rúss­neskir her­menn höfðu skotið þegar það stóð í bið­röð og var að bíða eftir mat­ar­út­hlut­unum.

Olga segir að það hafi verið sárs­auka­fullt að sjá rústir bygg­inga sem voru svartar eftir eld­tung­urnar sem höfðu gleypt þær eftir sprengjur Rússa. „Stuttu áður hafði ég gengið þarna um götur og farið á kaffi­hús og veit­inga­hús og hitt vini mína.“

Olga seg­ist hafa heyrt um mögu­lega inn­rás rúss­neskra her­sveita nokkrum vikum áður en stríðið hófst, en hún hélt að það kæmi aldrei til þess. Hún var á Íslandi í jan­úar og febr­úar og segir að vinir hennar hefðu ráð­lagt henni að fara ekki aftur til Úkraínu fyrr en kvitt­ur­inn um mögu­lega inn­rás væri lið­inn hjá. Hún fór hins vegar til Úkraínu 21. febr­úar – þremur dögum áður en stríðið hófst.“

Góðvild fólks á Íslandi

Og Olga ákvað að yfir­gefa borg­ina.

„Þegar ég var að fara frá Kharkiv varð ég að kom­ast á járn­braut­ar­stöð til að kom­ast svo í lest sem færi með flótta­fólk til Lviv. Rúss­neskir her­menn fóru suma daga inn fyrir varn­ar­lín­una og upp­hófust þá bar­dagar á götum úti og þá var hættu­legt að fara úr sprengju­skýl­unum. Ég beið eftir tæki­færi til að geta tekið leigu­bíl að járn­braut­ar­stöð­inni; almenn­ings­sam­göngur voru úr skorðum, en ég bjó ein með syni mínum og á ekki bíl.“

Fólk sat og svaf líka á gólfi lest­ar­innar.

Það kom að því að Olga og sonur hennar komust á lest­ar­stöð­ina og tóku lest til Lviv. Lestin var full af fólki og í fjög­urra manna svefn­klef­anum sem þau voru í, voru 10 manns og köttur. Fólk sat og svaf líka á gólfi lest­ar­innar meðan á ferð­inni stóð, u.þ.b. 22 tíma.

Mæðginin stuttu áður en þau fóru í lest­ina áleiðis til Póllands.

Olga keypti rútu­miða til Varsjár í Póllandi og loks sátu þau mæðginin í rútu og þegar þangað var komið dvöldu þau í nokkra daga á heim­ili pól­skrar fjöl­skyldu í Varsjá. Ísland var þó loka­á­kvörð­un­ar­stað­ur­inn, en Olga hafði áður komið til Íslands.

Olga seg­ist hafa und­ir­búið son sinn fyrir ferð­ina til Íslands. Hún sagði við hann að núna væru þau orðnir hæl­is­leit­endur og að þau myndu ekki búa á eins fal­legu og hlý­legu heim­ili eins og þau áttu í Kharkiv. Þau gætu átt von á að þurfa að búa hvar sem er á Íslandi þar sem þau fengju inni og að þau fengju lág­marks­nauð­synjar svo sem mat og föt, en að þau þyrftu að láta sér það nægja þangað til þau hefðu efni á meiru. „Ég tók með mér pen­ing sem ég hafði safnað til að geta keypt mat til að byrja með. Ég tók fleiri nauð­synjar með mér, svo sem lyf og föt sem henta íslenskri veðr­áttu. Ég hugs­aði með mér að við gætum séð fyrir okkur sjálf og að eng­inn þyrfti að hjálpa okkur.“

Íslend­ingar hafa tekið okkur með mik­illi hlýju og hjálpað okkur með margt.

Olga seg­ist ekki hafa búist við svona mik­ill aðstoð eins og þau mæðgin fengu eftir kom­una til Íslands. „Íslend­ingar hafa tekið okkur með mik­illi hlýju og hjálpað okkur með margt. Ég grét ekki vegna stríðs­ins, en þetta snart mig og ég grét næstum því vegna þessa.“

Við berjumst fyrir tjáningarfrelsi

Ástandið í Kharkiv hefur versnað mikið og segir Olga að nú sé borgin eitt helsta skot­markið. „Það er búið að eyði­leggja um 1.500 bygg­ingar í borg­inni. Opin­berir starfs­menn borg­ar­innar eru hetjur, en þeir sjá til þess að íbúar fái til dæmis heitt vatn og raf­magn. Þeir vinna stans­laust í þessum aðstæðum við að gera við skemmdar lagnir og víra og fjar­lægja grjót­muln­ing úr húsa­rústum.“

For­eldrar og bróðir Olgu eru enn í Kharkiv og ætla þau að fara í þorp nokk­urt þar sem örugg­ara er að vera. „Þau eru mjög hrædd af því að sprengjum er varpað í nágrenn­inu og ég bið þess að þau kom­ist í þorpið heilu og höldnu.“

Olga fædd­ist í Sov­ét­ríkj­unum og hún seg­ist hafa alist upp í umhverfi þar sem Rússar voru sagðir „bræðra­þjóð“, „besti vinur“ og jafn­framt „leið­togi bræðra­lýð­veld­is­banda­lags“. Ég á ætt­ingja í Rúss­landi. Þá bjó ég í aust­ur­hluta Úkraínu þar sem stór hluti þjóð­ar­innar talar rúss­nesku og móð­ur­mál mitt er rúss­neska. Núna er það „móðir“ tungu­máls okkar sem er að drepa okkur.

Úkraína er síð­asta hindrun þessa hættu­lega sam­fé­lags­sjúk­dóms.

Við berj­umst núna fyrir land­inu okkar og frelsi og þar af frelsi til að tala hvaða tungu­mál sem við viljum tala og við berj­umst fyrir rétti okkar til að segja hvað sem okkur býr í huga, en ekki bara segja það sem er leyft að segja; við berj­umst fyrir tján­ing­ar­frelsi. Við berj­umst fyrir frelsi og lýð­ræð­is­legum gildum sem eru ekki leyfi­leg í Rúss­landi. Við berj­umst ekki bara fyrir okkur sjálf. Við berj­umst til að stöðva útbreiðslu krabba­meins alræðis yfir til Vest­ur­landa. Úkraína er síð­asta hindrun þessa hættu­lega sam­fé­lags­sjúk­dóms.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi