„Fann orma í bbq svínarifi, hef aldrei lent í því áður! Hefur einhver lent í þessu?“ spyr Ólöf nokkur í Facebook-hópnum Matartips sem nú er orðinn alræmdur fyrir að sýna vankunnáttu Íslendinga í eldhúsinu.
Ormar Ólafar eru að öllum líkindum brjósk og voru meðlimir hópsins ekki lengi að benda henni á það. „Þú ert að grínast er það ekki? Þetta er brjósk…,“ skrifar kona nokkur meðan maður nokkur skrifar: „Þetta er brjósk því þú ert með spare-ribs“.
Annar maður segir þetta það sem koma skal. „Þó þetta væru ormar þá er bara að borða og venjast því, meira protein, eftir 20-30 ár munu pöddur gera um 40% fæðu fólks,“ segir sá.
Þó eru ekki allir á sama máli og eru margir sem gefa í skyn að þeim langi að æla. Svo er einn maður sem veltir því fyrir sér hvort þetta séu ormar frá útlöndum. „Er þetta innflutt? Tríkína ormurinn er sníkjudýr sem lifir í svínakjöti (hefur ekki fundist í íslenskum svínum) og getur smitast í menn með illa elduðu kjöti,“ skrifar sá maður.