Eins og greint var frá því í gær að þá er þekktur lögmaður sakaður um að hafa nauðgað eiginkonu skjólstæðings síns ítrekað; á meðan eiginmaðurinn – sem lögmaðurinn starfaði í fyrir – var í gæsluvarðhaldi. Er téðum lögmanni gert að sök að hafa nýtt sér viðkvæma og erfiða stöðu konunnar til að brjóta gegn henni; jafnvel sagt að hann hafi reynt að brjóta gegn henni á meðan hún lá inni á bráðageðdeild.
Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur skoðanir á málinu og skrifaði á Facebook-síðu sinni færslu sem hann hefur nú eytt.
Svona var færsla Ómars:
„Á meðan lögmaðurinn í fréttum er ekki nafngreindur, er ömurlegur samkvæmisleikur í gangi, þar sem keppst er við að geta sér um hver er. Á sama tíma væri ömurlegt fyrir umræddan lögmann að vera nafngreindur, þar sem ásakanirnar eru ákkúrat bara það: ásakanir.“
Eins og áður sagði þá eyddi Ómar færslunni; í stað hennar birti hann aðra þar sem hann tekur af tvímæli um að hann sé ekki þessi þekkti lögmaður:
„Ekki ég. Sorry haters“