Miðvikudagur 27. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Opið golfmót til styrktar Special Olympics á Íslandi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Special Olympics á Íslandi halda opið golfmót sunnudaginn 19. júlí, á Hólmsvelli í Leiru. Allir kylfingar eru hvattir til að mæta með fjölskyldu og vinum og taka þátt í skemmtilegu golfmóti.

Fyrirkomulagið er Texas Scramble, 2 í liði og allur ágóði rennur til Special Olympics.

Mæting kl. 08.15 og ræst út kl. 09.00 af öllum teigum í einu.

Opnað hefur verið fyrir skráningu í golfbox.dk en mótsgjald er 5.900 kr. Innifalið í því eru teiggjafir, verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti, lengsta teighögg og næst holu, hamborgari og gos í lok móts og að endingu dregið úr skorkortum sem er í anda Special Olympics,  að allir hafi möguleika á að vinna til verðlauna.

Mótið fer fram 19. júlí

Special Olympics samtökin voru stofnuð árið 1968 og er markmið samtakanna að stuðla að því að fólk með þroskahömlun geti tekið þátt í íþróttastarfi. Iðkendur í dag eru yfir sex milljónir frá yfir 190 löndum og samtökin standa jafnframt að stærstu íþróttaviðburðum í heimi sem eru alþjóðaleikar Special Olympics sem haldnir hafa verið víða um veröld. Starfið hefur þróast hratt og auk íþróttastarfs eru samtökin öflug í baráttu fyrir bættri menntun, heilsu og almennum mannréttindum þessa hóps.

Samfélagsleg verkefni hafa verið einkennandi fyrir samtökin og árið 1981 hófst samstarf Special Olympics International við lögregluna. Samstarfið er byggt á því að lögreglumenn hafa umsjón með kyndilhlaupi fyrir leika Special Olympics. Eru meðlimir LETR hátt í 150 þúsund frá yfir 50 löndum og standa að styrktarmótum fyrir Special Olympics og jafnframt til að auka almenna vitund um samtökin.

- Auglýsing -

Íslenska lögreglan hóf samstarf við LETR árið 2013 og hefur staðið fyrir kyndilhlaupum vegna Íslandsleika og annarra viðburða Special Olympics.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -