Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Ópíóíðafaraldur á Íslandi: „Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Marín Þórsdóttir deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu spyr einfaldlega í grein sinni:

Þekkir þú Nal­oxone og kanntu að nota það? 

„Árlega látast tugir einstaklinga vegna lyfjaeitrana hér á landi. Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni, en þá létust 46 einstaklingar.“

Marín nefnir að „algengasta lyfið sem fannst í þeim látnu voru ópíóíðinn Oxycontin og flogaveikilyfið Pregabalin; níu þeirra látnu voru einstaklingar undir þrítugu, jafn mörg og öll þau er létust í umferðinni hér á landi sama ár.“

Hún bendir á að „þrátt fyrir þennan gífurlega fjölda fólks á öllum aldri sem lætur lífið vegna ofskömmtunar á ópíóíðum, svo sem Contalgini, Heróíni, Methadoni, Fentanýli, Oxykódoni eða Búprenorfíni, var mótefni við því ekki aðgengilegt hér á Íslandi fyrr en nú á þessu ári, en þá var eitt stærsta mannréttindaskref fyrir einstaklinga sem nota ólögleg vímuefni stigið og lyfið Nyxoid gert aðgengilegt fyrir öll, þeim að kostnaðarlausu.“

Marín nefnir að Nyxoid lyfið, sem inniheldur virka efnið Naloxone, „hefur verið til í áratugi og margsannað gildi sitt víða um heim; mótefnið fæst meðal annars sem nefúði og það er ekki hægt að misnota.

- Auglýsing -

Dreifing á Nyxoid hófst hér á Íslandi fyrir alvöru þegar skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, Frú Ragnheiður og neyslurýmið Ylja, hófu dreifingu á því í marsmánuði fyrir tilstuðlan styrks frá fjársterkum einstaklingum.“

Hún segir að „fljótlega tók heilbrigðisráðuneytið við sér og um haustið var mótefnið gert aðgengilegt öllum þeim sem það þurfa, sem og viðbragðsaðilum. Þessu mikilvæga mannréttindaskrefi í heilbrigðisþjónustu á Íslandi ber að fagna.

Skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins hafa nú dreift tæplega 200 skömmtum til notenda og kennt þeim að nota lyfið. Lyfið er í raun er afar einfalt í notkun og allir Íslendingar ættu að þekkja einkenni ofskömmtunar og kunna að bregðast við þeim. Áður en lyfið er gefið skal ganga úr skugga um hvort einstaklingurinn sé með meðvitund, en helstu einkenni ofskömmtunar eru:

- Auglýsing -

Skortur á viðbrögðum við snertingu og/eða hljóði. Öndunin verður hæg eða jafnvel stöðvast. Hrotur, hrygglur eða köfnunarhljóð koma frá viðkomandi. Neglur og varir verða bláar. Augasteinar verða agnarsmáir (e. pinpoint).

Ef grunur liggur á ofskömmtun er mikilvægt að hringja strax í 112. Síðan er nefúðinn gefinn í aðra nösina, en í hverju hylki er einn skammtur. Ef sjúklingur sýnir engan bata eða einkenni ofskömmtunar hafa komið aftur skal gefa annan skammt af nefúðanum 2-3 mínútum síðar og þá í hina nösina og úr öðru hylki.“

Hún segir að lyfið virki nokkuð skjótt, og að hjá einstaklingum sem eru háðir ópíóíðum geta fráhvarfseinkenni frá þeim gert vart við sig:

„Líkt og hjartastuðtæki sem hanga uppi á flestum opinberum stofnunum og fjölmennum vinnustöðum ætti lítil gul Naloxone taska með tveimur nefúðum að hanga á sama stað. Almenningur ætti einnig að þekkja einkenni ofskömmtunar og kunna að bregðast rétt við. Með samheldnu átaki getum við fækkað ótímabærum dauðsföllum af völdum ópíóíðum, því hvert mannslíf skiptir máli og við missum því miður alltof marga einstaklinga á þennan hátt á hverju ári.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -