Að öllum líkindum mun það skýrast síðdegis í dag hvort Íslandi verði fyrsta land heimsins sem losnar við COVID. Þá munu fulltrúar íslenskra stjórnvalda funda með forsvarsmönnum lyfjaframleiðandans Pfizer.
Svo herma heimildir Mannlífs. RÚV greindi fyrst frá fundinum í gær. Viðræður um að gera Ísland að hjarðónæmistilraun hafa staðið yfir um nokkurt skeið, líkt og hefur komið fram í sennilega háværasta orðrómi síðustu ára. Ef það verður raunin þá yrði Ísland laust við COVID á mettíma og eðlilegt líf gæti byrjað á ný.
Gífurlegir hagsmunir eru því undir fyrir Íslensku þjóðina. Það má segja að mikilvægasti fundur frá Íslandssögunnar frá Kópavogsfundinum árið 1662 verði haldinn eftir hádegi. Stjórnvöld virðast vongóð því fjöldabólusetningarstöð er þegar risin í Laugardal. Ekki er ljóst hverjir verða á þessum örlagafundi en telja má líklegt að Þórólfur Guðnason og Kári Stefánsson komi að málinu.