Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Örvar vill flytja gettóið í Garðabæ: „Þessu á að ná fram með mikilli frekju og yfirgangi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Pistlahöfundurinn, þjálfarinn og Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristjánsson kallar eftir því í Víkurfréttum að Reykjanesbær segi upp samningnum við Útlendingastofnun. Hann segir bæinn ekki þola fleiri flóttamenn og spyr hvers vegna Garðabær geti ekki tekið við hluta þeirra. Örvar skrifar:

„Það eru eingöngu þrjú sveitarfélög hér á landi sem taka á móti umsækjendum um alþjóðlega vernd og er Reykjanesbær eitt þeirra. Fjöldi þeirra einstaklinga/fjölskyldna sem sækja hér um þessa vernd er alltaf að aukast jafnt og þétt. Í stað þess að Útlendingastofnun leiti til þeirra sveitarfélaga sem taka ekki á móti einum einasta umsækjanda (þrýsti betur á þau sveitarfélög) þá heimtar stofnunin að Reykjanesbær bæti við sig rétt rúmlega 100 manns (úr 70 í 170) til þess að þjónusta! Þessu á að ná fram með mikilli frekju og yfirgangi, Reykjanesbær er jú bara ruslatunna í huga Útlendingastofnunnar (reyndar ríkisins almennt) og þrátt fyrir að önnur sveitarfélög víkist undan samfélagslegri ábyrgð þá á að pönkast á þeim sveitarfélögum sem þó leggja eitthvað til málanna.“

Örvar segir stofnunina viljandi búa til gettó. „Hugmynd Útlendingastofnunnar er líka sú að gera smá „Getto“ upp á Ásbrú og hrúga þessum 100 einstaklingum í eina blokk. Líklega hafa þessir snillingar horft til einstaklega vel heppnaðrar tilraunar Svía í þessum málum á síðustu áratugum. Sveitarstjórnarmenn hérna hafa mótmælt en líklega nær þó stofnunin sínu fram á einn eða annan hátt grunar mig. Atvinnuleysið í Reykjanesbæ er vel yfir 20% (26% meðal kvenna) og álagið hefur bara stóraukist á heilsugæsluna, félagsþjónustuna, lögregluna og skólana svo dæmi séu tekin. Þrátt fyrir þessar nöturlegu staðreyndir þá ætlar hið opinbera að „berja“ á sveitarfélaginu með auknu álagi í þessum viðkvæma og erfiða málaflokki,“ skrifar Örvar.

Hann spyr svo hvers vegna Garðabær með öllu sínu ríkidæmi geti ekki tekið við hluta þessa fólks. „Persónulega finnst mér að Reykjanesbær eigi að gera meira en að mótmæla í þessu tilfelli og hreinlega segja upp þeim samningi sem nú þegar er í gildi og felur í sér alþjóðlega vernd fyrir 70 manns. Stinga t.d. upp á að Garðabær taki við þessum samningi tímabundið því þar drýpur jú smjörið af hverju strái og nóg af félagslegum íbúðum til afnota. Hvað ætli stofnunin segi þá? Stóra spurningin í þessu er svo einfaldlega sú af hverju ætli fleiri sveitarfélög taki ekki þátt í þessu verkefni? Eflaust vegna þess að þetta er gríðarleg vinna og afar kostnaðarsöm, margir umsækjendur eru í viðkvæmri og erfiðri stöðu – en í stað þess að dreifa byrðunum þá lendir þetta á einungis þremur sveitarfélögum sem gengur aldrei upp til lengdar,“ segir Örvar og bætir við að lokum:

„Við eigum því að segja þessum samningi upp alfarið, þá kannski vaknar ríkið og fer að gera eitthvað róttækt í þessum málum. Það verður a.m.k. að gera eitthvað meira en berja bara í borðið. Þarna verða fleiri sveitarfélög að koma að borðinu því það er löngu orðið tímabært.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -