Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Óskar er dauðvona – Flensan á Þorláksmessu reyndist nokkuð verra: „Hafði ekki fundið fyrir neinu“

Óskar Finnsson er þakklátur fyrir hvern dag
Óskar Finnsson er þakk­látur fyrir hvern dag

Óskar Finns­son mat­reiðslu­meist­ari greind­ist fyrir ári síðan með ólækn­andi krabba­mein sem dregur fólk til dauða að með­al­tali á hálfu öðru ári. Óskar greinir frá reynslu sinni í Morg­un­blað­inu í dag en hann hefur lofað fjöl­skyldu sinni að gera allt til lengja líf sittt.

Það var á Þor­láks­messu árið 2019 sem Óskar fann fyrst fyrir krabba­mein­inu, sem er í höfði og kall­ast gli­obla­stoma. Hann var að hjálpa til við að laga eft­ir­rétti á veit­inga­staðnum GOTT, sem dóttir hans á og rekur.

„Fljót­lega eft­ir að ég mætti á GOTT fór ég að finna til í höfð­inu og barm­aði mér yfir því að flensa væri að hell­ast yfir mig svona rétt fyr­ir jól­in. Verk­ur­inn ágerð­ist hins veg­ar og ég átt­aði mig smám sam­an á því að þetta væri ekki flensa. Ég ent­ist í þrjá tíma á veit­inga­staðnum en þá fór kon­an mín með mig heim. Ég yrði að hvíla mig. Ég var al­veg að drep­ast þegar við kom­um heim; fór úr úlp­unni og lagð­ist beint í sóf­ann. Þegar hér er komið sögu gat ég varla hreyft mig. Það var eins og ég væri með hníf í höfð­inu.“

Hann end­aði á bráða­mót­tök­unni þar sem honum leið eins og höf­uðið væri að springa. Hann reynd­ist vera með æxli á stærð við sítr­ónu. „Þegar við hjón­in mætt­um til Hall­dórs [Skúla­son­ar, heila- og tauga­sk­urð­lækn­is], kom hann sér beint að efn­inu. Hann hefði því miður ekki góðar frétt­ir handa okk­ur. Þetta væri ill­kynja æxli af verstu gerð, gli­obla­stoma, komið á fjórða stig. Hvernig gat það verið? Ég sem hafði ekki fundið fyr­ir neinu fyrr en á Þor­láks­messu og ekki verið með nein ein­kenni. María brotn­aði eðli­lega niður og spurði hvað þetta þýddi. Lif­ir hann bara í tíu ár, fimm? Hall­dór svar­aði því ekki beint en stað­festi að þetta væri eins slæmt og gæti orðið.“

Ítarlegt við­tal er við Óskar í Sunnu­dags­blaði Moggans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto