Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Páll Heiðar um spilakassa: „Byggðir upp á blekkingum til að hafa af þér eins mikið fé og hægt er“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Heiðar Jónsson er sálfræðingur hjá SÁÁ og hann ritar áhugaverðan pistil um spilakassa og fíkn þeim tengdum:

 

„Hér eru mikilvægar upplýsingar um spilakassa fyrir fólk sem þá notar: Spilakassar eru hannaðir af sérfræðingum í mannlegri hegðun. Hönnun þeirra miðar að því að nota öll tiltæk ráð til að gera kassana eins ávanabindandi og ómótstæðilega og mannleg þekking á viðfangsefninu gerir okkur kleift. Sá sem hannar mest ávanabindandi spilakassann stendur sig best í sinni vinnu,“ skrifar Páll Heiðar og heldur áfram:

 

„Þeir eru byggðir upp á blekkingum og tálsýnum til að hafa af þér eins mikið fé og er mögulega hægt. Það er tilgangur og virkni þeirra. Skjár kassans lýsir ekki innri virkni hans, skjárinn er ekki að myndbirta það sem gerist innra með honum. Skjárinn er blekking. Þegar það virðist sem maður hafi „næstum unnið“ þá er það ekki svo heldur er markmiðið að láta þér líða þannig að „þetta sé alveg að koma“. Þú hefur enga stjórn á útkomunni, sama hvað þú gerir; sama hvort eða hvernig þú ýtir á skjáinn eftir að leikur er hafinn þá hefur það engin áhrif á útkomuna.“

 

- Auglýsing -

Hann nefnir að „tilfinning um stjórnun er blekking. Líkurnar á vinningi eru ávallt þær sömu og þær eru þér ekki í hag. Tölvan reiknar einfaldlega tölu af handahófi með slembitölugjafa (e. random number generator) og það ákvarðar útkomuna í hvert sinn. Kassinn heldur ekki tölu um vinninga og tap, hann geymir ekki vinninga og er aldrei fullur eða tómur af peningum. Því hver leikur í kassanum er sjálfstæður leikur, óháður fyrri leikjum; það heitir „Sjálfstæði atburða“. Því færist maður aldrei nær vinningum, það er blekking.“

 

Bætir við:

- Auglýsing -

 

„Hann er samt hannaður til að láta þig halda að þú getir með einhverju móti haft áhrif á útkomuna; það heitir „Tálsýnin um stjórn“. Fjárhættuspil eru ávallt sett upp út frá þessum tveimur reglum: Að hver leikur sé sjálfstæður atburður, óháður fyrri leikjum og að þú hafir enga stjórn á útkomunni. Annars væru það ekki fjárhættuspil og þá væri hægt að læra að græða á þeim. Þá væri skynsamlegt að stunda fjárhættuspil og naskur leikmaður gæti grætt á þeim með því að beita réttri aðferð. Það er hins vegar ekki svo, hönnuðir spilakassanna sjá til þess.“

 

Páll Heiðar vill að lokum benda þeim sem vilja hætta að spila á vefsíðuna [email protected], eða símanúmerið 530-7600. Einnig að ef þú ert aðstandandi einstaklings með spilavanda þá er um að gera að hafa samband á netfangið [email protected], eða í áðurnefnt símanúmer, 530-7600, sem er einnig fyrir aðstandendur yngri en 18 ára, og líka sálfræðiþjónusta fyrir börn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -