Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Páll Óskar syrgir látinn „sambýlismann“ sinn: „Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Óskar Hjálmtýrsson, söngvari skrifaði hjartnæma færslu á Facebook í gær. Kötturinn hans, Gutti sem hann hefur átt síðustur 18 árin er dáinn og minnist Páll Óskar hans með langri og fallegri færslu. Það er nokkuð ljóst af orðum poppstjörnunnar að Gutti var stórmerkilegur köttur.

„Sambýlismaður minn og sálufélagi síðustu 18 árin, töffarinn Gutti, sofnaði svefninum langa föstudaginn 10. des kl. 11.30 fyrir hádegi. Hann mætti óboðinn í afmælið mitt 16. mars 2004, gaf sjálfan sig í afmælisgjöf og lifði kóngalífi í Paradís (vesturbænum í Rvk) fram á síðasta dag,“ skrifar Páll Óskar og á við að kötturinn átti aðra eigendur til að byrja með en stakk af og flutti til hans.

„Gutti fæddist í október 2002, og stakk af frá fyrri eiganda í Þingholtunum vegna ósættanlegs ágreinings við annan ógeldan gaur á sama heimili. Gutti ákvað að labba af stað og leita sér að íbúð í 101 eða 107 og þar hófst mikið flakk sem stóð lengi yfir. Samkvæmt lögregluskýrslum var Gutti handtekinn tólf sinnum á sex mánuðum (sjá mugshots). Hann var handtekinn á djamminu á Prikinu, Sólon, Rammagerðinni, Íslandsbanka á Eiðistorgi, Tóbaksbúðinni Björk og Happdrætti DAS. Hann var oft gómaður í miðasölu Háskólabíós og einu sinni var hann böstaður í Sal 1 þar sem hann var að horfa á kvikmynd Mel Gibsons „The Passion of Christ““

Gutti var ekki lengi að eigna sér heimili poppstjörnunnar.

„Þegar Gutti var búinn að gera leigusamning við mig (poppstjarnan fékk að leigja eitt herbergi í nýju íbúðinni hans) var strax tekið til óspilltra málanna að eignast stærri hlut í húsinu, garðinum, bílastæðunum, götunni og hverfinu. Með einbeittum brotavilja buffaði Gutti hvern þann sem veitti honum minnstu samkeppni. Hann varð góðkunningi Dagfinns Dýralæknis eftir ótal blóðuga bardaga og ég skil ekki stundum hvernig hann lifði þetta tímabil af. Ef ég hefði rakað allt hárið af Gutta hefði hann litið út eins og gamall boxari eða útsaumaður Rambo.“

Þá segir Páll Óskar frá því hvernig hann Gutti launaði honum lífgjöfina fyrstu þrjú árin.

- Auglýsing -

„Fyrstu þrjú árin þakkaði hann mér lífgjöfina með því að veiða allt sem hafði púls. Stundum leit heimilið út eins og hjá keðjusagarmorðingjanum í Texas. Einu sinni var keyrt á önd í götunni fyrir framan húsið. Gutti var eina vitnið. Hann dró líkið af öndinni af götunni, gegnum innkeyrsluna, inn í garð og tróð henni svo gegnum stofugluggan. Hann móðgaðist þegar ég varð brjálaður og fannst ég vera vanþakklátt pakk.“

Gutti var ekki hræddur við neitt að sögn Páls

„Hann var ekki hræddur við neitt. Einu sinni sá ég hann skella sér á „hestbak“ á hundi sem var mun stærri en hann. Gutti notaði hunda og jafnvel bílþök til að skutla sér þónokkurn spöl og var bara að fíla útsýnið á meðan.

- Auglýsing -

Gutti var ljóngáfaður. Það þýddi ekkert að reyna að æsa hann upp eða leika sér við hann með einverjum aðkeyptum kisu leikföngum. Ég keypti lazer til að stríða honum, en hann fattaði plottið eftir sirka 2 mínútur, stóð bara á gólfinu og horfði í augun á mér eins og ég væri hálfviti. Óþarfi að kaupa fleiri leikföng inn á heimilð eftir það.“

Páll Óskar segir næst frá því hversu mikill smekkköttur Gutti var varðandi mat.

„Gutti mjálmaði aldrei nema þegar brýna nauðsyn bar til. „Hleyptu mér út, opnaðu fyrir mér, gemmér að éta, það vantar mat í skálina, ég borða ekki mat sem er keyptur á bensínstöð, ég vil bara lífrænt ræktað Royal Canine, hvað hef ég gert til að verðskulda þessa ömurlegu þjónustu?“ Hann fór alltaf í göngutúr sjö sinnum á dag, til að tékka á yfirráðasvæðinu, pissa og buffa þá sem komu nálægt. Sjö sinnum á dag – allt til dauðadags,“ skrifaði Páll og hélt áfram. „Aðeins 15 mínútum áður en Dagfinnur Dýralæknir kom heim til að hjálpa Gutta að sofna svefninum langa, fór Gutti í sinn loka labbitúr út í garð, þótt hann gæti varla stigið í lappirnar né haldið haus, bara til að tékka á yfirráðasvæðinu. Jafnvel við dauðans dyr, þá var hann ennþá á vakt.“

Lokaorð Páls Óskars eru falleg og ljúfsár.

„Ég mun aldrei framar kynnast ketti eins og Gutta. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa fengið að deila síðustu 18 árum undir sama þaki og hann. Það er stórskrýtið að vera í íbúðinni núna. Ég þarf stundum að spyrja mig hvaða heimili ég sé staddur á. Það er stórskrýtið að snúa lyklinum í skráargatinu, opna útidyrahurðina og af gömlum vana kallar maður hátt og snjallt „MJÁ“ og maður á von á því að heyra eitt „mjá“ svar til baka. Núna heyrist það ekki og það mun taka mig nokkurn tíma að komast yfir það. Það er mikil sorg á heimilinu núna.

Blessuð sé minning Gutta, sem náði að lifa í 19 ár (alls 92 mennsk ár) og var hvíldinni feginn þegar nýrun hans luku keppni í síðustu viku. Ég er alveg í klessu hérna. Búið að vera mjög erfitt að skrifa þessa minningargrein og skoða allar þessar gömlu myndir. Maður grenjar og tekur svo hlátursköst inn á milli.
Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti. Takk fyrir að velja mig sem lífsförunaut. Ég hefði ekki getað valið betri kött. ❤
REST IN POWER
GUTTI (f. 10.10.2002 d. 10.12.2021)“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -