Þriðjudagur 23. apríl, 2024
11.1 C
Reykjavik

Rætun fíkniefna stöðvuð á tveimur stöðum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í dagbók lögreglu um verkefni gærdagsins og næturinnar kemur fram að lögregla hafi stöðvað ræktun fíkniefna á tveimur stöðum, annars vegar í fjölbýlishúsi í hverfi 112 þar sem plöntur og búnaður var haldlagt, hins vegar í fjölbýlishúsi í 101 þar sem 16 plöntur og búnaður var haldlagt. Málin eru í rannsókn.

Meðal annarra verkefna lögreglu í gærkvöldi og nótt voru tilkynningar um þjófnað, m.a. þar sem þurfti að hafa afskipti af manni í Breiðholti sem grunaður var um þjófnað á þremur vespum og einum barnakrossara. Maðurinn ók vespu á tilkynnandi og sparkaði ítrekað í hann þegar hann reyndi að komast undan. Maðurinn verður kærður fyrir líkamsárás er fram kemur í tilkynningu.

Þá var lögregla einnig kölluð á veitingastað á Granda þar sem starfsmenn veitingahússins héldu manni sem hafði reynt að stela áfengisflöskum. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum ástands. Lögregla hefur þurft að hafa afskipti af manninum ítrekað síðustu daga fyrir sömu brot, þ.e. þjófnað á áfengi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -