Miðvikudagur 27. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Ragnar: „Þar opinberar Halldór yfirlætið og hrokann sem sjóðfélagar lífeyrissjóða mega þola“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

25 milljarðar eru ekki mjólkur­laus speni og það eru margir sem sjúga fast,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og bætir við:

Halldór Benjamín Þorbergsson

„Halldór Benjamín framkvæmdastjóri SA fer mikinn í grein sem hann kallar, hljóð og mynd fara saman. Þar opinberar Halldór yfirlætið og hrokann sem sjóðfélagar lífeyrissjóða mega þola og hafa mátt þola frá varðhundum kerfisins áratugum saman. Allt sé byggt á misskilningi og íslenska lífeyrisundrið sé það besta og best rekna á byggðu bóli. Allur samanburður staðfesti það.“

Ragnar spyr:

„Standast fullyrðingar Halldórs skoðun? Halldór segir að fjárfestingarkostnaður – gjöld – lífeyrissjóða séu á bilinu 0,04 – 0,05% sem hlutfall af eignum, sem þýðir að þau hafi verið í kringum 2,3 til 2,8 milljarðar á síðasta ári. Ef ársreikningar lífeyrissjóðanna eru skoðaðir kemur allt önnur niðurstaða í ljós eða yfir 16 milljarðar þar sem „áætlaður“ kostnaður við fjárfestingar er vel falinn í skýringum ársreikninga sjóðanna og kemur ekki fram í tölum Halldórs. Af hverju ætli það sé því varlega áætlaður kostnaður er sannanlega kostnaður?“

Hann bendir á að „sjóðirnir bóka þar af leiðandi einungis beinan fjárfestingarkostnað sem er aðeins brot af heildarkostnaði og taka svo skrifstofu og stjórnunarkostnað og setja fram sem hlutfall af heildareignum. Sem verður auðvitað mjög lágt. Engin tilraun er gerð til að setja aldur og stærð lífeyrissjóðakerfa innan OECD í samhengi við hlutfall af kostnaði eða hvernig þeir færa kostnað vegna fjárfestingargjalda.“

- Auglýsing -

Og veltir því fyrir sér hvað Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé „með í laun sem hlutfall af landsframleiðslu? Ætli það sé sambærilegt og Joe Biden er með sem hlutfall af landsframleiðslu Bandaríkjanna? Hver ætli skrifstofu og stjórnunarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða sé á hvern ríkisborgara samanborið við löndin innan OECD?

Hver ætli raunverulegur rekstrarkostnaður lífeyrissjóða sé á hvern sjóðfélaga? Og hvað ætli séu margir lífeyrissjóðir að meðaltali fyrir hverja 360.000 íbúa í löndunum sem við berum okkur saman við? Þeir eru 21 á Íslandi!“

Ragnar segir að allur alþjóðlegur samanburður sé marklaus eða í besta falli villandi því kerfin séu misþroskuð, gömul og stór:

- Auglýsing -

„Staðreyndin situr eftir að þessi ríflega 25 milljarða árlegi kostnaður er viðurkenndur af sjóðunum sjálfum og alveg ljóst að hann er varlega áætlaður og að öllum líkindum miklu miklu hærri. Eiga stjórnir lífeyrissjóðanna betra skilið eins Halldór vill meina? Hvað fóru lífeyrissjóðirnir í mörg dómsmál til að sækja bætur fyrir hönd sjóðfélaga í eftirmálum bankahrunsins? Hvað hafa lífeyrissjóðirnir eða stjórnir þeirra farið í mörg dómsmál frá hruni eða hversu mörg mál hafa verið skoðuð eða kærð vegna vafasamra viðskipta, umboðssvika, tengsla, kynferðislegrar áreitni eða gruns um sviksamlega háttsemi gagnvart hagsmunum okkar sem eigum þessa sjóði? Hversu mörg?“

Ragnar spyr einnig „hvað gerðu stjórnir lífeyrissjóðanna þegar stóru alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtækin greiddu skilanefndum föllnu bankanna himinháar skaðabætur fyrir að þegja yfir því að hafa falsað ársreikninga bankanna í aðdraganda hrunsins? Uppgjör sem komu nýlega í ljós.“

Og spyr líka að þessu:

„Hvað gerðu stjórnir lífeyrissjóðanna þegar stjórnendur Icelandair – sem var í meirihlutaeigu lífeyrissjóðanna – keyptu verðlausan hlut í Lindarvatni á tæpa tvo milljarða sem flokksgæðingar og aðrir dekurkálfar skiptu bróðurlega á milli sín í gegnum nokkur eignarhaldsfélög?

Hvað gerðu stjórnir lífeyrissjóðanna þegar sjálftakan í kringum rekstur tölvukerfis lífeyrissjóðanna – Init hneykslið – komst upp?

Hvað gerðu stjórnir lífeyrissjóðanna þegar ein grófustu og alvarlegustu umhverfisbrot Íslandssögunnar voru framin af stjórnendum Eimskips við förgun skipa?

Hvað gerðu lífeyrissjóðirnir þegar upplýsingar komu fram um mögulega misbresti við sölu Bakkavarar árið 2016 og kostuðu lífeyrissjóðina 40 til 60 milljarða við skráningu félagsins á breskan markað?

Hvað hafa stjórnir lífeyrissjóðanna sópað mörgum óþægilegum málum undir teppið?“

Ragnar er á því að „Halldór Benjamín og Viðskiptablaðið geta þakkað stjórnum lífeyrissjóðanna fyrir vel unnin störf en þær hafa reynst fjármálkerfinu og atvinnulífinu mjög mjög vel. Bæði í formi fjármagns þegar vel gengur og aðgerðarleysis þegar illa fer. Og láta sig ekki vanta þegar svara þarf frekum lýðnum, og gera það með sama hroka og yfirlæti og af þeim er ætlast. Gæti ekki verið betra fyrirkomulag.“

Hann segir einnig að „25 milljarðar í árlegan rekstrarkostnað, sem er varlega áætlað, er ekki mjólkurlaus speni. Og það eru margir sem sjúga fast.

Jú það ber vissulega að þakka stjórnum sjóðanna fyrir meðvirknina, þöggunina og aðgerðarleysið þegar kemur að siðleysi, spillingarmálum og sjálftöku í íslensku fjármála og atvinnulífi. Það kemur því ekki á óvart að varðhundar kerfisins glefsi ef einhver opnar á sér munninn og spyr gagnrýnna spurninga.

En hvers eiga sjóðfélagar að gjalda?

Af hverju hafa sjóðfélagar ekkert um þetta að segja og af hverju er Halldór Benjamín ekki tilbúinn að þiggja boð mitt um að báðir aðilar setji það í hendur sjóðfélaga að kjósa stjórnir sjóðanna?

Flestir vita svarið við því.

Í því felast engin völd.

Sjóðfélagar lífeyrissjóða eiga betra skilið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -