Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ragnhildur segir Álftanesveg dauðagildru: „Ekki gaman að þurfa að segja „það hlaut að koma að því““

Færsla Ragnhildar Ágústs­dóttur um slys á Áltanesveginum hefur vakið mikla athygli en hún segir það hafa verið lengi ljóst að slys mynd eiga sér stað þar. Hún segir ekki gaman að þurfa að segja „það hlaut að koma að því“. Hún hefur komið á stað undir­skriftar­lista til bæjar­yfirvalda í von um að slys sem þetta endurtaki sig ekki.

Ragnhildur segir á Facebook: „Hún var ekki fögur aðkoman á slysstað (sjá pinna á korti) á gatna­mótum nýja og gamla Álfta­nesvegar fyrir nokkrum dögum síðan. Ljóst var að mikið tjón hafði orðið á bílum en ég vona að enginn hafi slasast alvarlega. Það er ekki gaman að þurfa að segja “það hlaut að koma að því” en það er nú samt staðreynd. Þetta er tifandi dauða­gildra og ég vona að bæjar­yfirvöld sjái að sér og snúi við þeim fáránlegu breytingum sem gerðar voru þegar lokað var fyrir umferð hjá gatna­mótum gamla Álfta­nesvegar og Herjólfs­götu – væntanlega til að minnka umferð framhjá Prýða­hverfinu (gult á korti).“

Kortið má sjá hér fyrir neðan en Ragnhildur segir íbúa þurfa að taka stór­hættulega vinstri beygju þar sem mikil og hröð umferð fer hjá. „Þegar sú lokun var gerð var horfið frá mun styttri en umfram allt öruggari leið inn í Hleina­hverfi (blátt á korti) og Garða­hverfi (grænt á korti), sem bæði tilheyra Garðabæ, um stórt og myndarlegt hringtorg á Álfta­nesvegi (sjá bleik ör á korti). Nú þurfa íbúar og gestir þeirra sem þar búa að taka stór­hættulega vinstri beygju á þessum gatna­mótum nýja og gamla Álfta­nesvegar, þar sem er mikil og oft hröð umferð. Ég skil ekki afhverju ekki mátti halda leiðinni fram hjá Prýða­hverfinu opinni og frekar grípa til annars konar aðgerða til að hægja á umferð, eins og til dæmis að setja háar hraða­hindranir og/eða vega­þrengingar,“ segir Ragnhildur.

Hún segist ávallt vera hrædd þegar hún nálgast þessi gatnamót. „Ég bý sjálf í Garða­hverfi og er alltaf með hjartað í buxunum þegar ég nálgast þessi gatnamót nýja og gamla Álfta­nesvegar, sérstak­lega þegar ég er með börnin í bílnum. Það þarf ekki nema einn bílstjóri á eftir mér að líta augnablik frá veginum til að stórkostleg hætta myndist. Það hefur gerst nokkrum sinnum hjá mér að bílar sem á eftir mér koma ná naumlega að sveigja fram hjá mér þegar ég hægi á til að beygja þarna inn, þó svo að ég gefi alltaf stefnu­ljós mjög tímanlega og byrja snemma að hægja ferðina. Þetta er í alvöru stór­hættulegt!,“ segir Ragnhildur og bætir við að lokum:

„Ég ítreka að ég vona að enginn hafi slasast í þessu tiltekna slysi en ef ekki núna þá gæti það gerst næst. Hvað þarf að gerast til að bæjar­yfirvöld sjái að sér? Þarf í alvöru einhver að deyja?“

Hér má skrifa undir undirskrifarlista hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim