Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Rakel Jóhannsdóttir er amma á strandveiðum: „Nei, ég er ekkert eldklár á þessu öllu“

Rakel Jóhannsdóttir er amma á strandveiðum: „Nei, ég er ekkert eldklár á þessu öllu“
Rakel Jóhanns­dóttir

„Fyrst þegar ég kom hérna var þetta mjög skrýtið. Ég var mjög nervös, hrædd og skelkuð. Algjör­lega. Ég keyrði á bryggj­una, bakk­aði á og ég gerði allan fjár­ann. Og þeir stóðu og horfðu á, litu undan og flissuðu en þeir eru að mestu hættir því núna þannig að þeir taka mér mjög vel,“ segir Rakel Jóhanns­dóttir, sjó­maður á Norð­ur­firði, í við­tali við Reyni Trausta­son, þegar hún er spurð hvernig karl­arnir, hinir sjó­menn­irnir, taki henni; þetta sé harðsvírað sam­fé­lag trillukarla eða strand­veiði­manna.

Rakel, sem ólst upp á Hólmavík, er dóttir skip­stjóra. Útgerð­ar­manns. Faðir hennar hét Jóhann Guð­munds­son.

Þannig að þarna kemur þetta beint í æð.

„Já,“ segir Rakel sem segir að hún hafi verið mikið á sjó með föður sínum á rækju, grá­sleppu og hrefnu­veiðum.

Hvað kom til að hún fór svo sjálf á sjó­inn?

„Það var árið 2014 að ég stóð upp úr skrif­stofu­starfi sem var búið að vera mjög krefj­andi og bróðir minn, Gunnar, bað mig um að vera kokkkur í einn túr á rann­sókn­ar­báti í rækju­leið­angri. Ég fór með viku fyr­ir­vara, kokk­aði ofan í 15 manns og fannst þetta algjört frelsi og geggjað.“

Gekk bara vel að kokka?

„Mjög vel.“

Varstu ekk­ert sjó­veik?

„Nei, ég hef aldrei verið sjó­veik.

Í jan­úar 2017 seldi annar bróðir Rakelar bát og hún keypti hann. Og tók punga­próf.

Það hélt áfram og ég var hjá honum; fór að veiða rækju og fleira með honum alveg fram til ára­móta 2016. Þá var ég fimm­tug. Þá var ég beðin um að koma sem háseti á Árna Frið­riks­son.“ Tíminn leið og í jan­úar 2017 seldi annar bróðir Rakelar bát og hún keypti hann. Og tók punga­próf.

Rakel er gift, á tvo upp­komna syni og þrjú barna­börn.

Hvernig tók eig­in­mað­ur­inn því að hún ætl­aði að kaupa bát?

„Svona bæði og. Ekkert rosa­lega vel. Ég eyddi spari­fénu okkar í þetta en ég er búin að borga það til baka.“

Rakel seg­ist hafa lent í allra handana ves­eni. Sjó­kælir­inn fór. Og vélin fór. Rakel er spurð hvort hún sé eld­klár á þessu öllu; fólk þurfi að hafa svolitla þekk­ingu á vél og bún­aði.

„Nei, ég er ekk­ert eld­klár á þessu öllu. Ég á son sem er lærður skip­stjórn­ar­maður og hann hefur hjálpað mér.“

Þú ert á sjó og það bilar kælir. Hvernig sérðu það?

„Vélin byrjar að hita sig og þú ferð ekk­ert af stað. Þá er bara að hringja og spyrja hvað ég eigi að gera. Og þá bið ég um drátt í land.

Þessi tjón urðu á þessum fyrstu árum, 2017 og 2018. Svo 2019 var allt komið í lag og búið að vera í lagi síðan.“

Báturinn heitir Bogga.

„Mamma var kölluð Bogga.“

Líka í bókhaldi

Rakel var nýkomin í land á Norð­ur­firði þegar við­talið var tekið. Hvernig tekur hún ákvarð­anir um hvert hún fer?

„Ég elti bara hina. Ég fer alltaf síð­ust.“

Það er alltaf ein­hver sem rambar á fisk.

„Já. Ég fer ekk­ert mjög langt því þetta er nátt­úr­lega bara dugga.“

Hvað gengur hann?

„Sjö og hálfa mílu.“

Hann fer ekki hratt.

„Nei, hann fer ekki hratt.“

Rakel, sem vinnur líka við bók­hald, seg­ist aldrei hafa verið fulla ver­tíð.

„Ég byrj­aði um miðjan júní og síðan er ég í hinni vinn­unni; ég þarf að fara alveg í hana í viku til 10 daga um hver mán­aða­mót. Ég reikna laun fyrir mörg fyr­ir­tæki og þarf að sinna því.“

En ég hef alveg haft milljón umfram; í hreinar tekjur.

Rakel er spurð hvað svona ver­tíð eins og núna gefi; getur hún fiskað fyrir verði báts­ins?

„Ég hef nú ekki gert það á einni ver­tíð. En ég hef alveg haft milljón umfram; í hreinar tekjur.“

Himneskt.

Rakel hafði verið launa­maður og hús­móðir áður em hún fór á sjónn á sínum tíma. Sá hún fyrir sér að hún færi í þetta?

„Nei, ég skil ekki alveg af hverju ég gerði þetta en mér finnst þetta ótrú­lega gaman. Þessu fylgir ótrú­legt frelsi eftir að hafa setið á skrif­stofu allan dag­inn, allan vet­ur­inn, og þá er þetta bara himneskt.“

Þú bíður bara eftir næstu ver­tíð.

„Já.“

Þetta er aðal­lega þorsk­ur­inn. Og svo­lítið af ýsu. Ufsa.

Maður þarf að vera svo­lítið sterkur.

Rakel er spurð hvort þetta sé eitt­hvað sem hún ráð­leggi öðrum konum að gera; að fara á sjó­inn.

„Já, ef þær treysta sér til þess.“

Hún segir líka: „Maður þarf að vera svo­lítið sterkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi