Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Reynir og Trausti taka yfir rekstur Mannlífs

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Reynir Traustason ritstjóri og Trausti Hafsteinsson, fréttastjóri Mannlífs, hafa
keypt vörumerkið Mannlíf og lénið mannlif.is af Birtingi útgáfufélagi. Birtingur
útgáfufélag er í eigu Goðdala sem er 100% í eigu Sigríður Dagnýjar
Sigurbjörnsdóttur. Birtingur mun áfram styrkja vörumerkin sem tilheyra tímaritunum.

Mannlíf hefur fest sig í sessi sem einn af mest lesnu fjölmiðlum landsins og hefur
átt í farsælu samstarfi við tímaritin Gestgjafann, Hús og híbýli, Vikuna og Séð og
heyrt. Það samstarf mun halda áfram.

Mannlíf er beittur og lifandi fjölmiðill og auk þeirra Reynis og Trausta, starfa
Kristjón Kormákur Guðjónsson og Hjálmar Friðriksson á fréttastofu miðilsins.
Fjöldi blaðamanna skrifa vandaðar greinar og pistla um lífstíl, mat, vín, heimili og
hönnun.

Reynir Traustason segir ánægjulegt að fá tækifæri til að leiða Mannlíf áfram og nú
sem eigandi. „Við höfum verið í mikilli sókn undanfarin misseri. Af
lestrarmælingum má ætla að lestur Mannlífs sé í dag talsvert meiri en
samanlagður lestur þeirra þriggja netmiðla sem við bárum okkur saman við þegar
ég hóf störf sem ritstjóri Mannlífs. Á bilinu 50-60 þúsund lesendur heimsækja vef
Mannlífs að jafnaði á hverjum degi og við munum halda áfram að höfða til ört
stækkandi lesendahóps.“

Kaup Reynis og Trausta eru í gegnum einkahlutafélagið Sólartún ehf, sem er að 75
prósent hluta í eigu Reynis og Trausti er eigandi að 25 prósenta hlut í félaginu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -