Fimmtudagur 28. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Ritstjórn Vikunnar hótað lögsókn vegna viðtals við Hödd um heimilisofbeldi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur, ræðir andlegt og líkamlegt ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrrverandi eiginmanns síns í nýjasta tölublaði Vikunnar.

Í viðtalinu er maðurinn ekki nefndur á nafn en hér er textabrot úr viðtalinu:

 „Það skipti ekki máli á hvaða tímapunkti þetta var; við vorum nýbyrjuð saman, þegar pabbi minn lést, þegar ég var ólétt eða í sængurlegunni og þá til að mynda með nokkurra daga gamla dóttur mína, missti starfið mitt, var í prófum, átti afmæli, kláraði próf, ritgerðir, útskrifaðist, eða kláraði einhverja àfanga.

Þegar ég var niðri og þurfti á honum að halda var ég of mikið vesen fyrir hann og hann lét mig sko finna fyrir því með því að níðast á mér. Þegar ég átti að upplifa gleðilega áfanga fannst honum ég vera að taka athyglina frá honum og hann eyðilagði allar slíkar stundir.

Hann hætti með mér daginn eftir að pabbi minn dó, hann ætlaði að skilja við mig kvöldið sem èg missti vinnuna, hann skildi mig eftir í sundi, þá var ég komin átta mánuði á leið með yngri dóttur mína, því ég var sár yfir því að hann hafði ekki komið heim af djamminu fyrr en undir morgun og ég vogaði mér að minnast á það. Hann trylltist og talaði svo ekki við mig í marga daga á eftir. Hann niðurlægði mig fyrir framan vinkonur mínar og vini, samstarfsfólk sitt og í rauninni bara alla.

Svo laug hann því út um allan bæ að ég væri skapofsakona sem talaði ógeðslega til hans.“

- Auglýsing -

Blaðið kemur formlega út á morgun en samkvæmt DV barst ritstjórn Vikunnar í dag bréf frá lögmanni mannsins, Gunnari Inga Jóhannssyni hjá MAGNA lögmönnum, þar sem hótað var lögsókn ef viðtalið yrði birt.

Í viðtalinu segir Hödd einnig frá rótleysi í æsku, átakanlegri sjálfsvinnu og því hvernig hún misnotaði áfengi til að deyfa sig. Hún segist ekki líta á sig sem neitt fórnarlamb en hún hafi viljað stíga fram fyrir sjálfa sig og dætur sínar.

 „Andlegt ofbeldi er hryllilegt, það brýtur mann svo mikið niður,“ segir Hödd með áherslu. „Þegar það er búið að sá öllum þessum efasemdarfræjum í hausinn á manni, segja manni ótal oft að maður sé ómögulegur, ógeðslegur, einskis virði, að öllum sé í nöp við mann og svo framvegis, þá kemur að því að maður fer að trúa því.

- Auglýsing -

Ég veit ekki hversu oft ég fékk að heyra að ég væri erfiðasta og ömurlegasta kona sem hann hefði nokkurn tíma þurft að eiga við.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni sem áskrifandi Vikunnar á vef Birtíngs, útgáfufélags Vikunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -