Þriðjudagur 23. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Rúrik Gíslason: „Það er dálítið gaman að stuða fólk“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrrum fótboltakappinn Rúrik Gíslason er að slá í gegn í þáttunum „Allir geta dansað“ í Þýskalandi. Rúrik segir að ekki hafi allir verið sammála um að hann ætti að taka þátt, sumir hafi haft sínar efasemdir: „Kannski varð það frekar til þess að ég tók þátt. Ég vil ekki festa mig, heldur víkka sjóndeildarhringinn, læra og gera nýja hluti. Kynnast nýju fólki sem er að gera öðruvísi hluti en ég er vanur. Það er einmitt það sem er svo gaman við að taka þátt í danskeppninni, að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, alls staðar að úr heiminum. Það er ómetanleg reynsla.“

Rúrik segist leiðast það þegar fólk setur sjálft sig og aðra í kassa: „Það er dálítið gaman að stuða fólk og gera eitthvað óvenjulegt og nýtt eða kjánalegt, eitthvað sem gæti hugsanlega veitt fyllingu í lífinu. Það er hvatning að vera smá rebel. Skoðanir annarra eiga aldrei að setja bremsu á líf manns.“

Hann segir það jafn framt óþarfi fyrir fólk að hafa skoðun á öllu og segist hann stundum spyrja sjálfan sig að því hví hann hafi skoðun á einhverju sem komi honum ekkert við: „Það sem skiptir mig máli er að fólkið mitt, fólkið sem skiptir mig verulega máli, sýni stuðning og jákvæðni. Og þau gera það.“

Rúrik var í helgarviðtali Mannlífs, viðtalið má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -