Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Rústaði íbúð vinar síns og reyndi að kveikja í húsgögnum – Drukkinn maður ráfaði um stigagang

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu barst tilkynning frá þreyttum íbúum í nótt en hafði það ekki fengið svefnfrið. Ástæðan fyrir því var sú að einn íbúi hússins var ofurölvi og ráfaði um stigaganginn. Reyndi hann ítrekað að komast inn í aðrar íbúðir en sína eigin sem endað með því að lögregla handtók manninn vegna ölvunarástands. Var hann látinn sofa úr sér í fangaklefa lögreglu og íbúar fengu svefnfrið.  Skömmu síðar barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í heimahúsi. Gerandinn var flúinn af vettvangi þegar lögregla kom.

Þá var aðili handtekinn eftir að hafa gengið berserksgang í íbúð annars aðila. Hafði hann bæði kastað til og skemmt húsgögn en var hann undir töluverðum áhrifum vímuefna. Reyndi hann einnig að kveikja í innanstokksmunum, án árangurs. Skemmdarvargurinn var handtekinn og látinn gista bak við lás og slá. Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Einn þeirra reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum fyrir samskonar brot.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -