Föstudagur 19. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Samherji greiddi ekki fyrir sjónvarpsþætti á Hringbraut

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samherji hefur birt stiklu með upptökum af Helga Seljan fréttamanni og er þar um að ræða brot úr Samherjaþáttum sem sýndir verða um meinta mútustarfsemi fyrirtæksins við Afríkuveiðar. Áður hafa verið gerðir sjónvarpsþættir um fyrirtækið þar sem fjallað var um húsleit Seðlabanka Íslands hjá því og voru þeir þættir sýndir á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Sigurður Kristinn Kolbeinsson sá um þá þætti fyrir sjónvarpsstöðina og hann vísar því á bug í samtali við Mannlíf að hafa verið fenginn til verksins af Samherja eða að hafa fengið greitt fyrir gerð þáttanna frá fyrirtækinu. Aðspurður segist hann ekki koma nálægt gerð hinna nýju þátta.

„Nei, nei, nei. Það er langt síðan ég gerði þessa þætti og þeir hafa ekkert með þessi mál að gera. Ég kem ekki nálægt því. Ég var ekki fenginn til verksins og þeir áttu ekki hugmyndina að þeim. Ég framleiddi þetta sjálfur fyrir Hringbraut. Því fer fjarri að ég hafi verið fenginn til þess eða fengið greitt fyrir frá Samherja, ekkert svoleiðis,“ segir Sigurður Kristinn.

Á morgun verður sýndur fyrsti þáttur Samherjaþátta sem taka munu á ásökunum um mútur við veiðar í Afríku. Heimildir Mannlífs herma að eitt af meginmarkmiðum þáttanna sé að afhjúpa Helga Selja fréttamann og var Þorbirni Þórðarsyni, fyrrum fréttamanni Stöðvar 2, falið það verkefni. Frétta­mað­ur­inn fyrr­ver­andi er í hópi þeirra að­ila sem veita Sam­herja að­stoð í kjöl­far upp­ljóstr­ana um meintar mútu­greiðsl­ur í Namib­íu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -