Undanfarið hefur hópur Kópavogsbúa komið saman reglulega og reynt að koma í veg fyrir að í Kópavogi rísi byggð sem hefur óafturkræf neikvæð áhrif á mannlíf, bæði á miðbæjarsvæðinu sem annarsstaðar. Því miður hefur þetta starf ekki borið árangur. Rökstuddum ábendingum er ekki svarað efnislega og ábendingar um bætt vinnubrögð hunsaða segir á síðu: Vinir Kópavogs.
Uppi eru stórtæk áform um breytingar á skipulagi í miðbæ Kópavog sem og víðar á Kársnesi og Digranesi.
„Bæjaryfirvöldum ber að hlusta á raddir bæjarbúa og taka tillit til vel rökstuddra ábendinga,“ segir á síðu félagsins.
Ljóst er að ólík sjónarmið liggja á milli Kópavogsbúa og bæjaryfirvalda Kópavogs og hitamál hvort að bæjaryfirvöld taki til greina ákall bæjarbúa eða hvort sátt náist á milli aðila.
Vinir Kópavogs er félag sem leitast eftir því að veita bæjaryfirvöldum aðhald og hafa tugir íbúa skráð sig sem stofnfélagar. Á síðu félagsins kemur fram að aðalmarkmiðið sé að láta ekki aðila með skammtíma hagnaðarsjónarmið ráðskast með skipulagsmál í Kópavogi.
Ákall félagsins er að nýja skipulagið myndi umgjörð um mannlíf, ekki bara núverandi kynslóða heldur framtíðar kynslóða Kópavogs.
Staðsetning miðbæjar Kópavogs er mjög miðlæg á höfuðborgarsvæðinu og segir að þar séu allar forsendur fyrir því að móta samfélag þar sem er hófleg þétting byggðar, opin svæði með birtu og skjóli auk atvinnustarfsemi.
Í dag fimmtudag 28. október kl. 17 verður boðið til formlegar stofnfundar í safnaðarheimili Kópavogskirkju og rætt um framtíðarplön bæjarins og hvernig gæti best hentað að skipuleggja lífsgæði í miðbænum.