Fimmtudagur 28. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Sara Dögg spyr „hvernig við ætlum að lifa með heimsfaraldri og hvert sé plan ríkisstjórnarinnar?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bæjarfulltrúinn og oddviti Garðabæjarlistans, Sara Dögg Svanhildardóttir, ritar áhugaverðan pistil, þar sem hún spyr hvort ríkisstjórnin hafi einhverja framtíðarsýn og áætlanir varðandi Covid 19 fyrir komandi vetur.

„Eftir verslunarmannahelgi fara margir að hugsa til haustsins. Fólk snýr aftur til vinnu, það fer að verða kertaljósahæft og rútínan tekur aftur yfir. Sumir leikskólar opna að nýju eftir sumarfrí í þeirri viku og undirbúningur grunnskólanna er að hefjast,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Við, sem starfað höfum við skólastarf, þekkjum eftirvæntinguna og gleðitilfinninguna sem fylgir því að mæta til leiks og undirbúa nýtt skólaár. Haust eftir haust. Hitta nýja nemendur eða heilsa þeim gömlu að nýju. Þetta eru töfrarnir sjálfir.“

En að mati Söru Daggar er raunveruleikinn talsvert frábrugðinn þeim sem við höfum átt að venjast:

„Þetta haustið eru öll sem koma að skólastarfi hins vegar í töluverðri óvissu um upphaf skólaársins,“ segir hún og bætir við:

- Auglýsing -

„Ísland er nú statt í stærstu bylgju heimsfaraldursins. Sem betur fer er stór hluti þjóðarinnar bólusettur. En það er ekki enn ljóst hvaða áhrif bólusetningin hefur. Það er ljóst að bólusettir sýkjast og smita áfram, þó afleiðingarnar fyrir bólusetta virðist vægari.

Í þessari miðju bylgju, með skólastarf hinum megin við hornið, hafa stjórnvöld ekki lagt fram neinar áætlanir um hvernig á að takast á við bylgjuna innan skólakerfisins. Eða áætlanir um hvernig skólarnir eiga að lifa með veirunni.“

- Auglýsing -

Sara Dögg nefnir að „gefið hefur verið út að starfsfólk skólanna, sem flestir fengu eina Jensen sprautu, muni í ágúst bjóðast að koma í „búst“ til að verða klárt í slaginn. En það hefur ekkert komið fram um framtíðarsýnina; en það er alveg ljóst að það þarf að gera ráðstafanir. Veiran svífur um og stingur sér niður, að því er virðist hvar sem er. Hún er ekki að gufa upp og við munum þurfa að lifa með henni enn um sinn,“ segir Sara Dögg og spyr í kjölfarið hvert sé „plan ríkisstjórnarinnar?“

„Ætla stjórnvöld að miða við að skólakerfið hrökkvi eins og ekkert sé aftur í Covid-gírinn? Með fjarkennslu og börn og ungmenni sem dúsa heima. Á að viðhalda félagslegri einangrun sem við óttumst öll að hafi langvarandi neikvæðar afleiðingar. Eða eru einhver önnur plön í kortunum? og hver eru þau þá?“

Sara Dögg segist vita til þess að „foreldrar og starfsfólks skólakerfisins eru margir áhyggjufullir yfir stöðunni og gangi mála; foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum – hvort þau muni smitast í skólunum þegar börnin og ungmennin hópast aftur saman eftir sumarfrí.“

Og bendir á að „þó þau veikist síður en aðrir, þá bera þau samt smit sem getur líka borist til bólusettra starfsmanna skólanna. Starfsfólk leik- og grunnskóla hefur unnið algjört þrekvirki fram til þessa í þágu samfélagsins á sama tíma og því hefur stafað ógn af heimsfaraldrinum.Þær aðstæður mega aldrei teljast sjálfsagðar.“

Sara Dögg leggur áherslu á að „við getum ekki sætt okkur við að ekki séu lagðar fram skýrar áætlanir, þannig að einhver vissa ríki um það sem koma skal. Einhver vissa önnur en að skólastarf fari núna af stað í mikilli óvissu og óöryggi vegna heimsfaraldursins, meðal starfsfólks, barna og ungmenna sem og foreldra þeirra. Sú óvissa og óöryggi mun lifa á meðan stjórnvöld leggja ekki fram sýn og plön um hvernig við ætlum að lifa með heimsfaraldri.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -