Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Segir að dómsmálaráðherra sæti ofsóknum: „Alþingismenn ættu að hrósa ráðherra fyrir að virða lögin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögmaðurinn Jón Steinar Gunnlaugsson lætur gamminn geysa og er klárlega í liði með Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra; sem þessa dagana er undir mikilli pressu frá úr öllum áttum vegna nýja útlendingafrumvarpi hans, sem er ansi hreint umdeilt:

„Lög um útlendinga eru frá árinu 2016. Þar er kveðið á um málsmeðferð þegar útlendingar óska eftir að fá vist á Íslandi. Svo er að sjá sem afgreiðsla mála hafi frestast vegna farsóttarinnar, sem gengið hefur yfir síðastliðin tvö ár. Nú er sá tími liðinn og eðlilegt ástand þessara mála hefur komist á,“ segir Jón Steinar og heldur ótrauður áfram:

„Samkvæmt lögunum afgreiða sérstakar stjórnsýslustofnanir beiðnir útlendinga um landvist og búsetu hér. Þar fer kærunefnd útlendingamála með vald á áfrýjunarstigi. Henni ber auðvitað að starfa eftir íslenskum lögum. Nú hefur hún synjað allmörgum útlendingum um leyfi til að setjast hér að. Þá er eins og stór hluti þjóðarinnar fari á límingunum.“ og „ráðist er á dómsmálaráðherrann sem ekki hefur tekið þessar umdeildu ákvarðanir, heldur kveðst aðeins vilja fara að lögum landsins og framfylgja þeim ákvörðunum sem rétt stjórnvöld hafa tekið.“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra

Jón Steinar vill meina að dómsmálaráðherra sæti „nú hreinum ofsóknum. Þar ganga m.a. fast fram alþingismenn, sem sumir hverjir tóku þátt í lagasetningunni. Biskup Íslands og a.m.k. einn hempuklæddur orðafeykir taka þátt í árásununum og krafan virðist vera sú að því aðeins beri að fara eftir lögum að mönnum líki efni þeirra í einstökum málum.“

|
Agnes M. Sigurðardóttir biskup

Hann færir í tal að „grunnreglum, t.d. um þrískiptingu ríkisvaldsins, skal vikið til hliðar fyrir geðþóttann. Alþingismenn ættu að hrósa ráðherra fyrir að virða lögin í stjórnsýslu sinni. Þeir geta svo á vettvangi löggjafans, ef þeir vilja, flutt frumvörp um breytingar á lögunum sem ráðherra hefur heitið að fara eftir. Það er stundum átakanlegt að fylgjast með menningarstiginu sem birtist í almennum umræðum á Íslandi um málefni þjóðfélagsins.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -