Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Segir meirihlutann fella allar tillögur: „Þótt þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnarfirði, Guðmundur Árni Stefánsson skrifar grein sem ber yfirskriftina: Fram­sækni eða fælni og hefst svona:

„20 tillögur sem til bóta horfa fyrir bæjarbúa í Hafnarfirði voru fluttar af jafnaðarmönnum á fundi bæjarstjórnar 7.desember síðastliðinn. Þær voru allar felldar! Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn máttu ekki til þess hugsa að samþykkja eina einustu þeirra, jafnvel þótt margar þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni; úr meirihlutasáttmála þessara flokka, sem þeir kynntu í vor! En af því að Samfylkingin lagði þetta til, þá var ekki hægt að samþykkja neitt – ekki eina tillögu!“

Guðmundur Árni nefnir að „jafnaðarmenn lögðu til að samþætta heimilishjálp og heimahjúkrun í Hafnarfirði. Það felldu sjálfstæðismenn og framsókn. Jafnarfólk lagði til að þrýsta á ríkisvaldið um byggingu nýrrar heilsugæslu. Og byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hamranesi fyrir eldri borgara sem þurfa umönnum. Mál sem hafa verið á dagskrá árum saman, en ekkert miðar. Báðum þessum brýnu og mikilvægu málum var hafnað.“

Guðmundur Árni er hissa á því að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn skuli „fella eigin tillögur Hér skulu nefnd nokkur dæmi um mál sem meirihlutinn hafnaði á bæjarstjórnarfundinum: Það má ekki fjölga félagslegum íbúðum í Hafnarfirði, þrátt fyrir gríðarlega langan biðlista og brýna þörf.

Það er ekki á dagskrá að bjóða íslenskukennslu á vegum Hafnarfjarðarbæjar fyrir íbúa bæjarins, sem eru af erlendu bergi brotnir.

Það má ekki tryggja húsnæði fyrir Leikfélag Hafnarfjarðar.

- Auglýsing -

Það á ekki að leysa húsnæðisvanda Brettafélagsins. Né Dansíþróttafélagsins.

Það má ekki hækka frístundastyrk til barna og ungmenna.

Því er hafnað að bjóða upp á frítt í strætó fyrir unglinga á aldrinum 12-15 ára.

- Auglýsing -

Það var fellt að styrkja starfsemi Markaðsskrifstofu Hafnarfjarða. Það skal ekki gera betur í að lagfæra grunn- og leikskólalóðir. Því er neitað að gera átak í aðgengismálum fyrir fatlað fólk og auka umferðaröryggi við gangbrautir bæjarins. Og alls ekki skal farið í viðræður við ófaglært starfsfólk leikskólanna um kjarajöfnun gagnvart öðrum sveitarfélögum.“

Hann vill meina að „þessar tillögur og fleiri voru ekki kostnaðarsamar, enda var gert ráð fyrir tekjum á móti í fjórum sjálfstæðum tekjutillögum jafnaðarmanna – sem voru auðvitað líka felldar.

Raunar voru tekjutillögur jafnaðarmanna langt umfram kostnað við úrbæturnar. Þessi gamaldags póltík valdhafa í meirihluta Hafnarfjarðar eru lýsandi dæmi um pólitískt kjörna valdhafa, sem eru hræddir og óvissir um stöðu sína. Það er ekki sama hvaðan gott kemur.

Ef það kemur frá fjórum bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands, þá skal andæfa og hafna.

Það er sumpart skiljanlegt að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks séu óöruggir og óvissir og viti ekki gjörla hvað skal til bragðs taka. Þeir sjá það og skilja að eftir meira en 8 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins – lengst af í samstarfi við Framsóknarflokkinn, þá hefur þjónustu bæjarins hrakað – um leið og fjárhagsstaða bæjarins er afar viðkvæm. Þar má ekkert út af bregða.“

Guðmundur Árni segir að „rekstrarhalli er viðvarandi, enda þótt skuldir aukist ár frá ári. Og jafnvel líka þótt fasteignaskattar séu hækkað um tugi prósenta.

Jafnaðarmenn vilja sjá sterkan Hafnarfjörð þar sem bjartsýni, velferð og velsæld ríkir meðal bæjarbúa. Þar sem allir eiga kost á öflugri grunnþjónustu óháð efnahag og framsækið atvinnulíf er ríkjandi.

Það vantar mikið upp á að þessi grunngildi séu í heiðri höfð. Þetta er spurning um stjórnarhætti sem einkennast af framsækni eða fælni og ótta við núið og framtíðina. Það þarf einfaldlega jafnaðarmenn til forystu í Firðinum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -