- Auglýsing -
Björn Birgisson minnir á að nú sé stutt í næstu samninga stétterfélaganna og veltir fyrir sér ýmsu hvað það varðar.

Í nýrri færslu veltir samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson, því fyrir sér, nú þegar tiltölulega stutt er til næstu samninga á vinnumarkaði, ýmsu sem því kemur við. Spyr hann hvort Efling vilji fara fram með Starfsgreinasambandinu. Svarar hann því sem svo að hvorugt stéttarfélaganna hafi áhuga á samstarfi. Veltir hann því fyrir sér að lokum hvort stefni hér í þjóðarsátt og hvort Efling verði partur af þeirri sátt. Færsluna má lesa hér að neðan:
„Stutt í næstu samninga.
Menn eru strax farnir að velta fyrir sér hvernig verkalýðshreyfingin fer í næstu samninga um og eftir áramótin.
Verður Efling með Starfsgreinasambandinu?
Öllu heldur:
Vill Efling fara fram með Starfsgreinasambandinu?
Held ekki.
Vill Starfsgreinasambandið fá Eflingu með í sitt samflot?
Held ekki.
Ekki ef Sólveig Anna verður áfram í formennsku.
Ekki er ólíklegt að ástandið eftir áramótin verði svipað og það var áður en miðlunartillagan seinni kom fram.
Allt í hers höndum.
Og þó.
Kannski verður gerð einhver þjóðarsátt.
Kannski verður Efling með í því.“