Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Siggi Stormur alveg stúmm: „Undarlegt að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði daginn fyrir kosningar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samkvæmt grein Fjarðarfrétta var boðað var til fundar í bæjarráði á afar óhefðbundnum tíma, á föstudaginn 13. maí, klukkan 10. Segir miðillinn að fundarboð hafi borist þremur mínútum eftir áskyldan fyrirvara, en fundinn sátu:

Ágúst Bjarni Garðarsson formaður, Kristinn Andersen varaformaður, Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður, Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður, Jón Ingi Hákonarson aðalmaður, Sigurður Pétur Sigmundsson varamaður, Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnarfulltrúi; auk þeirra sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Rósa Guðbjartsdóttir og Ágúst Bjarni Garðarsson
Á fundinum áðurnefnda voru það fimm mál sem tekin voru fyrir á þessum síðasta degi fyrir kosningar.
Fyrst voru teknir fyrir bæjarráðsstyrkir þar sem 1,3 milljónir kr. til þriggja aðila. Einnig samþykkti bæjarráð að afsala sér forkaupsrétti á fiskiskipinu Guðrúnu BA 127 en hafnfirska Útgerðarfélagið Dagný ehf. átti skipið; var að selja það úr bænum. Í slíkum tilfellum á sveitarfélag seljanda forkaupsrétt. Þriðja málið á dagskrá var endurnýjun á þjónustusamningi við Fjölsmiðjuna, sem gerður var við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Er viðbótarframlagið 11,5 milljónir og hlutdeild Hafnarfjarðar í því 1.495.000 kr. Heildarframlag sveitarfélaganna hækkar því um 105 prósent frá gerð samningsins árið 2020.
Síðustu tvö málin sem tekin voru fyrir á umræddum fundi hafa verið nokkuð mikið til umræðu; aðallega vegna skorts á formlegum heimildum: En bæjarráð heimilaði á fundi sínum 3. maí síðastliðinn að veita heimild til að undirbúa útboð vegna byggingar reiðskemmu Sörla og knatthúss Hauka. Því hefur það ekki tekið nema rúma viku að undirbúa útboðin, en Fjarðarfréttir greina svo frá að miðillinn hafi mjög áreiðanlegar heimildir fyrir því að sú undirbúningsvinna hafi þegar verið hafin á framkvæmdasviði Hafnarfjarðarbæjar.
Einnig kemur fram að nú, rúmri viku síðar, samþykkti bæjarráð að ráðist verði í útboð á 1. áfanga reiðhallar Sörla í samræmi við fyrirliggjandi útboðs- og verkskilmála; við útboðið áskilur sveitarfélagið sér allan rétt til að hafna öllum tilboðum yfir framlagðri kostnaðaráætlun. Það verði nýkjörinnar bæjarstjórnar að taka afstöðu til þess; hvort og þá líka hvaða tilboði verður tekið að afloknu útboði.
Sama form var á samþykkt bæjarráðs á útboði á 1. áfanga knatthúss Hauka. Það verður því nýkjörin bæjarstjórn sem tekur málið fyrir, enda málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar sem eðlilega tekur afstöðu til þess hvaða tilboði verði tekið að loknu útboði eða hafni þeim öllum.
Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, þáverandi fulltrúi Miðflokksins, sagði mikilvægt að afstaða flokka í núverandi bæjarstjórn til þessa máls sé ljós; enda komi það í hlut nýkjörinnar bæjarstjórnar að samþykkja útboðið endanlega. Sigurður lýsti undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði, daginn fyrir kosningar. Og bókaði:
„Fulltrúi Miðflokksins styður að setja framkvæmdir við knatthús Hauka í útboð. Það er mikilvægt að afstaða flokka í núverandi bæjarstjórn til þessa máls sé ljós, enda kemur það í hlut nýkjörinnar bæjarstjórnar, með sitt endurnýjaða umboð, að samþykkja útboðið endanlega. Fulltrúi Miðflokksins lýsir hins vegar undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði, daginn fyrir kosningar.“
Annar Sigurður, Sigurður P. Sigmundsson, fulltrúi Bæjarlistans, sagðist í bókun sinni mótmæla harðlega þeirri aðferð bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að taka til afgreiðslu í bæjarráði degi fyrir sveitarstjórnarkosningar tillögu um að farið verið strax í útboð á framkvæmdum við knatthús Hauka og reiðskemmu Sörla.
Sagði hann ekki tímabært að taka þessa ákvörðun og ekki rétt stjórnsýslulega séð að binda hendur næstu bæjarstjórnar með þessum hætti. Réttara væri að bæjarstjórn taki málið til afgreiðslu og þannig myndu allir bæjarfulltrúar fá tækifæri til að taka þátt í umræðum og afgreiðslu:
„Þá skal á það bent að umhverfismat um byggingu knatthússins mun ekki liggja fyrir fyrr en í ágúst eða september 2022. Að samþykkja útboð með fyrirvara um niðurstöðu umhverfismatsins er ekki góð stjórnsýsla. Þá er nokkuð ljóst að ekki verður hægt að hefja jarðvinnu á starfssvæði Sörla fyrr en í september 2022. Það er sem sagt ekkert sem kallar á það að bjóða þessi verkefni út núna. Það liggur því fyrir að ekki er búið að tryggja fjármögnun til þessara verkefna. Ef þessar fjárfestingar eru ekki innan fjárhagsáætlunar þarf viðauka við fjárhagsáætlun, sem bæjarráð þarf að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar,“ segir Sigurður og tekur fram að þessi gjörningur útiloki tvo af fjórum minnihlutaflokkunum frá því að taka formlega afstöðu; tillagan er sett fram í bæjarráði þar sem ekki allir hafa atkvæðisrétt.
„Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessi meirihluti hagar sér svona í sambærilegum málum,“ segir Sigurður að lokum í bókun sinni. Hann samþykkti þó, en lét fylgja með að hann teldi aðgerðina dansa á línu þess löglega.
Adda María Jóhannsdóttir, þáverandi fulltrúi Samfylkingarinnar, en hún gaf ekki kost á sér fyrir kosningarnar í gær, samþykkti auglýsingu útboðs, en sagði athyglisvert að meirihluti Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins ætli að enda kjörtímabilið með sama hætti og þeir hófu það; með því að dansa á línu þess löglega við afgreiðslu mála er varða uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Adda segir í bókun sinni að fundarboð fyrir fundinn hafi verið sent út með minnsta löglega fyrirvara; á afar óhefðbundnum fundartíma; þegar umboð fráfarandi fulltrúa er um það bil að renna út.
„Með þessari tillögu er enn verið að gefa innihaldslaus loforð og óútfylltur tékki sendur áfram á nýja bæjarstjórn. Umhverfismat vegna knatthúss á Ásvöllum hefur ekki verið lokið og fyrirvari gerður um það í útboðsgögnum. Þá hefur heldur ekki fyllilega verið gert ráð fyrir fjármögnun þessara verkefna í gildandi fjárhagsáætlun og ekki verið gerður viðauki vegna útboðanna.
Skv. sveitarstjórnarlögum er óheimilt að víkja frá fjárhagsáætlun nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, sem geri grein fyrir breytingum á útgjöldum og skuldbindingum,“ sagði Adda og benti á að fyrir um það bil ári síðan hafi bæjarstjóri tekið fyrstu skóflustungu að knatthúsi Hauka og að formaður bæjarráðs hafi gert slíkt hið sama að reiðhöll Sörla. Ekkert hafi hins vegar gerst fyrr en nú þegar málið er sett á dagskrá á lokametrum kosningabaráttunnar:
„Hér er um sýndartillögu að ræða til að slá ryki í augu kjósenda,“ sagði Adda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -