Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Sigmundur Ernir talar hreint út: „Okkur var hent út á sama tíma og elsta dóttir okkar var að deyja“

Sigmundur Ernir Rúnarsson
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Rússneski fáninn, fótum troðinn, á mynd sem Frétta­blaðið birti og í kjölfarið heimsóttu tveir starfs­menn rússneska sendi­ráðsins hér á landi ritstjórnar­skrifstofu Frétta­blaðsins. Sendi­ráðið vildi afsökunar­beiðni. Sem það fékk ekki. Ritstjórinn, Sigmundur Ernir Rúnarsson, segir að sér finnist þetta vera aðför að íslenskum fjöl­miðlum. Sama dag var gerð netárás á vef fjöl­miðilsins. Sigmundur Ernir hefur staðið í eldlínu fjöl­miðlanna í um fjóra áratugi og talar við Reyni Traustason um ferilinn svo sem þegar hann var rekinn úr starfi frétta­stjóra Stöðvar 2. „Það á og má reka frétta­stjóra Stöðvar 2.“ Þá voru góð ráð dýr. Og Sigmundur Ernir gaf kost á sér og komst á þing. Hann hélt síðan áfram í fjöl­miðlum eftir fjögur ár við Austur­völl og stýrir í dag fjölmiðla­veldi. Og hann skrifar bækur og gengur á fjöll. Fram undan eru tvö fjöll í Afríku. Hann talar um andar­drættina þrjá í hverju skrefi.

„Ég hef verið í blaða­mennsku í yfir 40 ár og hef aldrei fengið tilskipanir frá sendiráði á Íslandi sem vill hlutast til um það hvaða myndir við birtum og hvaða myndir við birtum ekki,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Frétta­blaðsins, í viðtali við Reyni Traustason þegar þeir ræða um afskipti rússneska sendi­ráðsins hér á landi í kjölfar þess að Frétta­blaðið birti mynd af rússneska fánanum sem var Rússunum ekki að skapi. „Sérstak­lega er þetta skrýtið í ljósi þess að eitt algengasta andlag stríðs­átaka eru mótmæli þar sem fánar viðkomandi árásar­ríkja eru brenndir, skornir, skitnir út eða traðkaðir niður. Þetta eru einar algengustu átaka­myndir allra stríða sem hafa verið háð á síðustu árum og áratugum. Það er verið að brenna ísraelska fánann, bandaríska fánann, rússneska fánann; fána þessara þjóða sem eru að ráðast á aðrar þjóðir. Og svo koma Rússar allt í einu og krefjast þess að við biðjumst opinber­lega afsökunar á því að hafa birt mynd af rússneska fánanum niður­troðnum, fótum troðnum, og krefjast þess að við gerum það í ljósi íslenskra reglna eða laga sem er í rauninni löngu úrelt. Stundum er sagt að það fyrsta sem falli í stríði sé sann­leikurinn og reglur, sem sé frelsið til að mótmæla; tjáningar­frelsið verður oft og tíðum laga­bókstafnum yfir­sterkara. Vegna þess að fólk á heimtingu á að mótmæla blóðsút­hellingum, aðförum að börnum, gamalmennum, menningu, húsum, sögu landsins. Eins og er bara að gerast í Úkraínu. Og Rússar eiga að líta sér nær heldur en þetta og hugsa sinn gang.

Mér finnst þetta aðför að íslenskum fjöl­miðlum.

Sendiráð Rússa birti okkur bréf sem tveir sendi­ráðsmenn komu með til okkar inn á ritstjórn og við svöruðum um hæl um að þeir stjórnuðu ekki íslenskum fjöl­miðlum. Mér finnst þetta ekki aðför að Frétta­blaðinu í sjálfu sér. Mér finnst þetta aðför að íslenskum fjöl­miðlum. Ég tók sérstak­lega eftir því að íslenskir fjöl­miðlar stóðu saman allir sem einn gegn þessari aðför og það er vel og ég tek hatt minn ofan fyrir íslensku fjölmiðla­fólki fyrir að sýna samstöðu á svona stundum þegar sótt er að með einræðis­legum tilburðum að frjálsri fjöl­miðlun. Og frjáls fjöl­miðlun er einn af hornsteinum lýðræðis og mann­réttinda.“

Sama dag og bréfið frá rússneska sendi­ráðinu barst var vefurinn, frettabladid.is, tekinn niður og segir Sigmundur Ernir að hann hafi hökt fram eftir morgni. „Það kom jafnframt hótunar­bréf í okkar ritstjórnar­póst væntanlega frá rússneskum þjóðernis­sinnum sem sögðust ætla að taka vefinn algerlega niður klukkan 12 samdægurs að Moskvu­tíma; klukkan níu um kvöldið að okkar tíma. Og það gekk ekki eftir. Það varð engin árás á vefinn á þeim tíma þannig að þetta var í orði kveðnu til þess að skapa ótta.“

Sigmundir Ernir segir að fundað hafi verið með utan­ríkis­ráðuneytinu, netöryggis­þjónustu ríkisins og ríkis­lögreglu­stjóra. „Þau tóku þetta mjög alvarlega og mér þótti mjög virðingar­vert að sjá hvað bæði utanríksiráðherra og önnur stjórn­völd tóku þetta óstinnt upp og svöruðu þessari árás. En almennt séð virðist þetta hafa verið gert til þess að hræða og hræða aðra í kringum okkur á hinum Norður­löndunum og víðar í frjálsri Evrópu upp á að gæta sín; fara ekki að birta svona myndir – það gæti haft eftirmál. En við eigum bara að standa í lappirnar.“

Okkur er oft hótað.

Þetta hlýtur að vera svolítið álag; það er ekkert grín að fá á sig heilt heims­veldi.

„Það komu margir að máli við mig og spurðu hvort ég væri ekki persónu­lega með böggum hildar; svolítið hræddur. Og ég fór að hugsa til þess. Jú, kannski á maður að vera pínulítið hræddur. Ég hef oft og tíðum sem fjölmiðla­maður og stjórn­andi fjölmiðla fengið alls konar hótanir til dæmis frá fíkniefna­smyglurum sem segja að þeir viti í hvaða leikskóla eða skóla börnin mín eru. Ég hef af og til tilkynnt viðkomandi hótun til lögreglunnar en þetta er bara partur af því að stjórna íslenskum fjöl­miðlum. Okkur er oft hótað.“

Hent út

Sigmundur Ernir Rúnarsson er að norðan.

„Ég byrjaði í blaða­mennsku 1981; kom hingað suður nýstúdent frá Akureyri. Búinn að gefa út eina ljóðabók en hafði skrifað býsnin öll af alls konar efni í mennta­skólablaðið Gambra sem var stjórnar­andstöðu­blað í mennta­skólanum á móti Muninum sem var hið virðulega skólablað. Við vorum pönk­ararnir í skóla­blaðinu Gambra; ég og Hjörleifur Hjartarson, síðar skemmtikraftur með Hund í óskilum, og Þorvaldur heitinn Þorsteinsson, myndlistar­maður og rithöfundur; blessuð sé minning hans. Kristinn Eiríkur Hrafnsson, vinur minn og myndlistar­maður. Og fleira gott fólk. En ég kom hingað suður harðákveðinn í að fara í blaða­mennsku og gekk alla röðina í Síðu­múlanum. Fór fyrst á Þjóð­viljann; fékk neitun. Svo á Dagblaðið; fékk neitun. Svo sá ég að ég gæti valið á milli Tímans hinum megin við götuna eða Vísis; mér var frekar illa við að fara á Vísi en ákvað að taka rétta röð. Og þar inni tók á móti mér Ellert B. Schram og þegar hann komst að því að ég hafði þegar gefið út eina ljóðabók, tvítugur strákurinn, þá réð hann mig á stundinni og ég gekk inn í bás hjá Árna Sigfús­syni, Gunnlaugi Sævari Gunnlaugs­syni og Óskari Magnússyni. Þannig að blárra gat það ekki verið. Þetta var eins borgaralegt blað og hugsast gat en frábært fólk og miklir vinir mínir enn þann dag í dag.“

Ég er reiður þessu fólki.

Jú, Sigmundur Ernir vissi hvað hann vildi og það fékk hann. Og árin liðu í fjölmiðla­heiminum. Stöð 2 er einn af vinnu­stöðunum. Þar var hann frétta­stjóri og segir hann að allir frétta­stjórar séu reknir fyrir rest.

Sig­mundur Ernir á fjalli ásamt Elínu Sveins­dóttur, eig­in­konu sinni.

„Ég var rekinn og reyndar konan mín samdægurs í einhverju hefndar­skyni. Ari Edwald og Ólafía Rafns­dóttir mannauð­stjóri ákváðu að reka mig sem var alveg sjálfsagt mál. Það á og má reka frétta­stjóra Stöðvar 2. Það er bara hið eðlilega. En þeir ákváðu að henda konunni minni út samdægurs og þetta var gert með þeim hætti að okkur var hent út. Eftir allt okkar uppbyggingar­starf, ekki síst konu minnar, Elínar Sveins­dóttur útsendingar­stjóra, sem var óþreytandi og vann hjá frétta­stofu Stöðvar 2 nánast frá upphafi. Okkur var hent út á sama tíma og elsta dóttir okkar var að deyja; þetta var svo fagurlega gert hjá þeim. Við vitum allt um það hvað hefur orðið um þetta fólk síðan. Og ég er reiður. Ég er reiður þessu fólki. Ég skal bara viðurkenna það. Ekki út af mér heldur út af konunni minni.“

Og fjöl­miðlar fjölluðu svolítið um alþingis­manninn sem hafði verið fjölmiðla­maður.

„Ég leið svolítið fyrir það að vera frægi karlinn.“

Maður er mót­aður af mót­vindi.

Þú lentir í smákrísu. Mynd­skeiði var deilt þar sem þú varst undir áhrifum. Slompaður í ræðustól.

„Ég hafði tekið þátt í boðsmóti bankans míns þvert um geð; fór á golfmót. Og þar var eins og stundum á þessum boðsmótum hellt svolítið upp á liðið. Ég hins vegar var svo samvisku­samur að ég vissi að ég ætti ræðu klukkan 11 eða 12 um kvöldið og kom svo niður eftir og taldi mig vera færan í flestan sjó. En svo þegar hitinn innandyra sveif á mann þá fór maður kannski aðeins að slompast. Ég áttaði mig ekki þá á því að ég hefði getað frestað ræðunni. En ég var svo samvisku­samur að mæta bara til leiks og það mátti heyra á mæli mínu að ég hafði fengið mér tvö þrjú rauðvíns­glös. Þó það nú væri. En ég segi nú alltaf að lífið væri nú lítils virði ef maður lenti ekki í mótlæti. Og maður er búinn til úr mótvindi. Maður er mótaður af mótvindi. Og ég hef lent í alls konar erfið­leikum í mínu lífi og gert fullt af mistökum. Öðruvísi lifir maður ekki. Og maður er að mörgu leyti miklu mótaðri af mótvindi heldur en meðvindi.“

Sigmundur Ernir baðst afsökunar.

„Það sem mér finnst einna leiðinlegast við íslenskt samfélag sem er að mörgu leyti mjög heillandi og krúttlegt er að virðingin fyrir afsökuninni hefur minnkað. Samfélags­miðlarnir eru orðnir ákafari. Gamla Gróa á Leiti er svolítið komin út á opinberan vettvang.“

Við eigum að virða afsök­un­ina.

Hún er á Twitter.

„Hún er á Twitter, Facebook og öllum þessum samfélags­miðlum þar sem fólk er vegið hægri vinstri og örugglega gera allir eitthvað af sér um dagana og þar á meðal ég. En við eigum að virða afsökunina. Ef menn viðurkenna mistök sín, biðjast afsökunar á þeim, biðjast vægðar og telja sig geta lært af mistökunum þá eigum við að virða afsökunina. Okkur verður öllum á. Og mér á eftir að verða aftur á. Þannig er lífið.

Við eigum að virða afsökunina og mér líst illa á þessa útilokunar­menningu sem er að halda innreið sína inn í samfélagið þar sem er verið að dæma menn úr leik án dóms og laga. Og það finnst mér vera óheilla­þróun.“

Vinnan fram yfir vinskapinn

Sigmundur Ernir er spurður hvert erfiðasta málið sé sem hann hefur unnið að á ferlinum.

„Þau eru mörg. Auðvitað var óstjórn­lega erfitt að lesa upp í tveimur frétta­tímum – og ég var frétta­þulur báða dagana árið 1995 – nöfn fólksins sem fórst í snjó­flóðunum á Flateyri og í Súðavík. Þetta var að mínu viti á meðal aumustu kafla Íslands­sögunnar þegar þjóðin laut höfði; stóð saman sem ein fjöl­skylda. En ég fann hins vegar á okkur frétta­fólkinu – Eggerti Skúlasyni sem fór vestur og kvik­mynda­töku­mönnunum okkar og í rauninni bara öllum okkar hópi sem var að segja fréttir af þessu – hvað við tókum þetta inn á okkur. Þetta er einn af þeim atburðum sem maður er ennþá hvað sárastur gagnvart. Þetta er svo fámennt land. Stundum þarf maður að taka ákvörðun; á ég að segja frétt af óförum kunningja manns og vina? Jafnvel mjög náinna vina? Jú, maður kemst að þeirri niður­stöðu að maður verði að segja þessa frétt. Annars væri ég ósamkvæmur sjálfum mér. Og það hafa orðið vinslit fyrir vikið. Það er nátt­úrlega mjög erfitt og nánast óbærilegt að taka vinnuna fram yfir vinskapinn. Það er ekki léttvægt.“

Heimur ofboðslega margra hugmynda

Ritstjóri. Rithöfundur. Ljóðskáld. Fjalla­maður. Hvernig hefur Sigmundur Ernir tíma í þetta allt?

„Ég hef líklega verið ofvirkur allt frá barnæsku. Ég elska að vinna. Ég elska að vera innan um fólk. Og ég elska reyndar líka einsemdina ekki síst upp til fjalla. Bara vera einn með hugsunum mínum. En ég hef alltaf verið maður margra hugmynda í einu og hef helst viljað koma þeim öllum í framkvæmd. Í þessu starfi, bæði sem rithöfundur og blaða­maður, þá æfist maður. Þá æfist maður í að fá margar hugmyndir. Sumar vondar. Aðrar skárri. Einhverjar góðar. Og þetta ágerist með árunum. Maður bara lifir og hrærist í heimi ofboðslegra margra hugmynda. Ég get nefnt sem dæmi að í hvert sinn sem ég hef klárað ljóðabók hin seinni ár þá finnst mér ég vera algjör­lega tæmdur. Bara eins og tómur tankur. En svo bara óvart tveimur árum seinna er maður búinn að fylla upp í næstu ljóðabók án þess að vita af því. Þetta kemur einhvern veginn aftan að manni.“

Hann segist vera A-maður. „Ég reyni að vakna ekki seinna en sjö og ég vil helst vera kominn í vinnuna fyrir átta til að eiga alveg klukku­stund til að undirbúa daginn. Svo er ritstjórnar­fundur þar sem við leggjum línurnar fyrir daginn hvað varðar Frétta­blaðið og frettabladid.is Svo á ég fundi með blaða­fólkinu á DV sem ég er líka aðal­ritstjóri yfir og fólkinu á Frétta­vaktinni á Hringbraut og þátta­stjórnendum þar. Þannig að þetta fer mikið í fundahöld fram eftir degi. En svo reyni ég líka að skrifa í blaðið. Mér finnst ótækt að ritstjóri og vanur blaða­maður til margra ára skrifi ekki í blaðið líka þannig að ég vil helst af og til skrifa helgar­viðtöl og fréttir og vera bara í stuðinu og samkeppninni meðal annarra blaða­manna um að eiga forsíðuna. Það er aðal­fjörið.“

Hann segir að frétta­stjórarnir ráði því hvað fari á forsíðuna.

Ég sest stundum inn á kaffi­hús með komp­una mína.

„Síðan er ég töluvert seinni partinn í tökum á Frétta­vaktinni eða upptökum á þáttum. Ég er búinn að gera 260 Mannamáls­þætti, viðtals­þættina mína í sjónvarpi. En svo af og til fer ég út á land og geri þætti þar. Ég er búinn að gera 18 fjallaskála­þætti í samvinnu við Ferða­félag Íslands um þessa merkilegu menningu sem fjalla­skálarnir um öll örævi Íslands eru. Og svo nota ég kvöldin og helgar til að skrifa bækur. Ég sest stundum inn á kaffihús með kompuna mína. Ég skrifa öll mín ljóð í kompur. Litlar kompur. Ég á hundruð slíkra kompa frá því ég var í Mennta­skólanum á Akureyri.“

Stundum vinnur hann fram á nótt.

Hvenær hefur hann tíma fyrir eigin­konuna?

„Á fjöllum og heima í elda­mennsku. Við erum ofsalega miklir vinir. Við gerum allt saman. Við erum náin. Við unnum mikið saman, eða í kringum 20 ár, á Stöð 2 þar sem við kynntumst. Við förum mikið á fjöll. Við göngum líka mikið í bænum. Það eru ofboðs­lega margar fallegar göngu­leiðir í bænum. Við förum mikið út á land,“ segir Sigmundur Ernir og nefnir gamla heima­bæinn sinn, Akureyri, þar sem hjónin ganga jú líka.

„Við gengum um síðustu helgi rúmlega 40 kílómetra; við fórum að Fjallabak sem er einn fegursti staður landsins.“

Þrír andardrættir

Sigmundur Ernir segist hafa hæst verið í um 3.800 metra hæð í Andesfjöllum. „Í kringum 3.500 metrum finnur maður fyrir því þegar maður leggst á koddann að andar­drátturinn er styttri en ella.“

Og fram undan er ganga í Afríku. Þar ætlar hann að klífa tvö fjöll.

„Það er annars vegar Meru, sem er um 4000 metra hátt, til að undirbúa okkur undir næsta fjall sem er Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, sem er um 6000 metra hátt. Það verður kúnst að því leyti að labba í hita, 30 stiga hita og það verður kúnst að því leyti að þarna er matar­eitrun algeng. Gangan fer misjafnlega í lungu fólks.“

Sigmundur Ernir segir að síðasta daginn þurfi að ganga hægt. „Í hverju skrefi þarf maður að taka þrjá andar­drætti til þess að lifa gönguna af sómsamlega vegna þess að hæðar­aðlögunin er svolítið happ­drætti. Og maður veit ekkert hvernig þetta fer með magann, lungun eða höfuðið. Sumir hafa endað í rang­hugmyndum. En ég á von á því að við komumst klakk­laust í gegnum þetta. Við verðum með frábæran leið­sögumann, Leif Örn Svavarsson.“

Svo verður gerð tveggja þátta röð um þessa ferð. „Konan verður með litla upptökuvél og lítinn dróna.“

Ég er með ofboðs­lega margar hug­myndir í koll­inum.

Hann sem lætur landann fylgjast með málefum heimsins, býr til ævintýra­heima í bókunum sínum og kynnist öðrum heimi á fjöllum og gerir um þann heim þætti sem eru meira að segja svolítið ljóðrænir segir að það sé draumur sinn að geta á næstu árum einbeitt sér enn frekar að ritstörfum. „Ég er með ofboðs­lega margar hugmyndir í kollinum og það er eilíflega verið að biðja mig um að skrifa hinar og þessar bækur og ég er aðallega í því að neita fólki um það. Vel rjómann. Ég er til dæmis núna að skrifa bók um konu af Ströndum. Frá Trékyllisvík. Frá bæ í Árnes­hreppi. Þetta er mikil örlaga­saga. Dramatísk saga stúlku sem 11 mánaða gömul var flutt á spítalann á Ísafirði, berkla­sjúk í hryggnum. Í beinum. Og ólst þar upp til níu ára aldurs, algerlega óskólagengin“

Svo þvældist hún síðar á milli bæja. Og saga hennar hélt áfram.

Svo er það ein saga sem Sigmundur Ernir segist verða að skrifa. „Hún ber vinnu­heitið „Fyrir norðan hníf og gaffal“ og fjallar um samskipti mín við Sigmund afa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Jón Pétur Zimsen sagðist síðustu tvo áratugi að jafnaði annað hvert ár hafa farið í jarðarför ungs manns sem hann hafði kennt.
Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“