Laugardagur 25. janúar, 2025
1 C
Reykjavik

Sigurður G. um „baráttukonur“: „Þeim er ekki treystandi og síst af öllu til nokkurra góðra verka“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður skrifaði í dag harðskeyttan pistil á Facebook síðu sinni þar sem hann skítur föstum skotum á konur sem kalla sig baráttukonur. Sigurður nafngreinir fjöldann allan af konum sem hafa verið virkar í umræðu á samfélagsmiðlum um ofbeldi gegn konum. Sakar hann þær um ofstæki, brot á persónuvernd og skipulagðar aðfarir á mannorði manna án réttmæts tilefnis. Meðal kvennanna sem Sigurður tekur fyrir í pistli sínum er áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Edda Falak og meðlimir baráttuhópsins Öfgar.

„Þegar litið er yfir þá slóð sem baráttukonurnar skilja eftir sig á samfélagsmiðlum bæði í opnum og lokuðum hópum vekja aðferðir þeirra og atlögur gegn einstökum mönnum óhug.“

Þá vitnar Sigurður óbeint í frétt Mannlífs um svokallað hvísl sem stundað er í lokuðum Facebook hópi sem kallast Aðgerðarsinnar gegn nauðgunarmenningu.

„Með skipulögðum hætti er komið á framfæri fullyrðingum um að nafngreindir karlmenn séu ofbeldismenn og nauðgarar, þó ekkert liggi þar að baki, engin kæra, enginn dómur, ekkert. Hvíslið á netinu á að duga til að slaufa þeim, útskúfa og koma í veg fyrir að þeir hafi í sig og á.“ Sigurður tekur nokkur dæmi þar sem hann meðal annars tiltekur andóf gegn starfsemi Reynis Bergmanns, sem rekur skyndibitastaðinn Vefjuna.

„Þannig hefur nú um nokkra hríð markmiðið verið að ganga frá litlu fyrirtæki manns sem kallaður er nauðgari og ofbeldismaður. Gefum Sölku Sigmars orðið í þeirri baráttu ,,Getum við látið vefjuna fara á hausin plís”. Undir þetta er tekið af öðrum og bætt um betur og eitt meintra fórnarlamba látið koma fram hjá Eddu Falak til að draga upp sem dekksta mynd. Engu skiptir fyrir umræðuna þó fórnarlömb ofstækiskvenna þessara hafi verið sýknuð af öllum sökum.“

Sigurður talar einnig um andróður kvennanna gegn Agli Einarssyni, oft kallaður Gillzenegger, en kvartað hefur undan því  að hann leiki í hinni geysivinsælu kvikmynd Leynilögga. Egill var tvisvar kærður fyrir nauðgun fyrir mörgum árum en bæði málin voru látin niður falla eftir rannsókn lögreglu.
Þá gerðist Egill sekur um karlrembu og frekar ógeðfelld skrif snemma á öldinni en hann hefur síðan þá gengist við því og beðist afsökunar.

- Auglýsing -

„Ekki létti það brúnir Kristínar Elfu Guðnadóttur og Tönju Ísafjörð þegar Gísli Marteinn bauð Steinunni Ólínu í auglýsingaþátt sinn á RÚV til að kynna nýja bíómynd þar sem Egill Einarsson leikur. Þær taka saman tal um Gísla Martein sem fær þá einkum að vera súper viðkunnanlegur og kunni að segja það sem hentar og hann sé til í kaffispjall í desember. Hann fær þá einkum að vera meira ,,woke” en flestir á hans reki. Rétt er þó talið að vera á varðbergi gagnvart Gísla Marteini þar sem hann spili sig einfaldari en hann er.
Hvort þessi orðræða Tönju og Kristínar Elfu um samskipti og væntanlegt kaffispjall með Gísla Marteini er rétt veit enginn. Getur þess vegna verið uppspuni eins flest sem kemur fram í orðræðu kvennanna á samfélagsmiðlum. Fjöðrin verður í hópum þeirra ekki að hænu heldur hænsabúi þar sem hávaðinn og fyrirferðin eru jafngild sannleikanum.“

Sigurður sakar konurnar um andlegt ofbeldi og telur að bæði sannleiksást þeirra og siðferði sé á lágu plani.

„Siðferði kvennanna og sannleiksást virðist á lágu plani; reyndar mjög lágu plani. Leyfi einhver sér að efast um róg og illmælgi þeirra skal gengið frá honum með níði, aðdróttunum og hreinum óþverraskap, sem sennilega má flokka sem andlegt ofbeldi.“

- Auglýsing -

Sigurður kemur síðan með þónokkur dæmi sem hann telur að sýni hvernig konurnar hafi beitt sér gegn nafngreindu fólki og fyrirtækjum þeirra á netinu og sakar þær um óþverraskap.

„Ragnheiður Aradóttir aktivisti gegn nauðgunarmenningu sagði í færslu 11. janúar 2019 að litlu hlutirnir skiptu máli. ,,Minn eigin litli aktívismi er að ég borga áskrift til Stundarinnar. Ég fékk í gegn að það sé ekki verslað við Henson hjá vinnunni. Ég borða ekki á Gló. Bækur frá Óðinsauga ekki keyptar. Eruð þið með fleiri svona litla hluti sem þið gerið? @ Sjöfn Friðriks svarar „Vefjan!!““

Lokaorð Sigurðar eru nokkuð hvöss.

„Vonandi fer ofbeldi af hálfu þessar kvenna að ljúka. Þeim er ekki treystandi. Síst af öllu til nokkurra góðra verka.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -