Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Sigurður segist sykursjúkur, þungur og blindur eftir Sjálfstæðisflokkinn: Bolað burtu

Sigurður G. Tómasson er stórt nafn í sögu útvarps en hann starfaði hjá Ríkis­útvarpinu í áratugi, þar á meðal sem dagskrár­stjóri Rásar 2 um árabil. Sigurður starfaði á sínum tíma í umhverfi þar sem nánast nauðsynlegt var fyrir umsækjendur að hafa pólitísk tengsl. Sigurður hefur áður sakað Sjálfstæðis­flokkinn um að bola sér úr starfi og segir flokkurinn ekkert hafa á móti ríkis­rekstri fjölmiðla. Sjálfstæðis­menn vilji bara ráða þeim og það hefur flokkurinn reynt að gera í áratugi. Sigurður kveðst hafa veikst alvarlega eftir svæsnar og endur­teknar árásir Sjálfstæðis­manna.

Sigurður fer aðeins dýpra í átök sín í útvarps­húsinu á samfélags­miðla­síðu sinni. Össur Skarp­héðinsson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, hefur sagt Sigurð frábæran fjölmiðla­mann sem bolað var burt úr Efstaleiti af hægri mönnum.

„Rifjaði upp áðan í samtali hvenær ég fékk sykur­sýkina. Það var á seinasta ári mínu sem dagskrár­stjóri Rásar 2. Ég var undir miklu álagi, vissi af tilraunum Sjálfstæðis­flokksins til þess að losna við mig. Meðal annars var staða mín auglýst, þótt ég sæti í henni, grennslast var um það hjá samstarfs­fólki hvort ekki væru hnökrar á starfi mínu sem nota mætti til til áminningar og svo framvegis,“ segir Sigurður sem áður hafði sakað Björn Bjarnason, fyrr­verandi menntamála­ráðherra, að plotta gegn honum.

„Á endanum var svo gerð tillaga um skipulags­breytingu, þar sem mín staða var lögð niður. Ekki var gert ráð fyrir að ég gegndi neinu starfi hjá Ríkis­útvarpinu eftir breytingar,“ segir Sigurður. Hann hóf fljótlega að finna fyrir einkennum sykursýki en taldi það vera þunglyndi sem stafaði af álagi.

„Nú á dögum mundi þetta flokkast undir einelti,“ segir Sigurður og er viss um að hægt sé að rekja veikindin til þeirrar aðfarar sem hann varð fyrir af hægri mönnum.

„Í kjölfar sykursýkinnar fór ég að missa sjón og varð á endanum blindur. Ekki eru öll áhrif á heilsu mína talin. Og þess má geta að staða dagskrár­stjóra Rásar 2 var búin til aftur að fáum árum liðnum.“ Sigurður G. Tómasson segir að lokum:

Lái mér hver sem vill en ég mun aldrei fylgja Sjálfstæðis­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra