Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Síminn hafnar kynlífstækjabúðum-Jón hjá Lovísu: „Nákvæmlega ekkert óeðlilegt að versla kynlífstæki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Síminn Pay vill ekki verða við þeirri beiðni að hægt verði að nota greiðsluleið þeirra í kynlífstækjaverslunum á netinu. Skýringin er sú að kynlífstækjakaup myndi skaða ímynd Símans. Þetta kemur fram í svari Símans til eiganda kynlífstækjaverslunarinnar Lovísu.is:

„Við höfum áhyggjur af því að kynlífstæki og Síminn eigi ekki samleið. Við höfum verið að berjast við þetta í langan tíma.“

Jón Þór Ágústsson er eigandi Lovísu og er hann mjög hissa á svari Símans. Jón hefur lengi barist fyrir því að Síminn Pay leyfi greiðsluleiðina í netversluninni en ávallt fengið höfnuð á beiðninni. „Eftir fjölda fyrirspurna varðandi það af hverju við bjóðum viðskiptavinum okkar ekki uppá þann möguleika að greiða með Síminn Pay þá höfðum við samband við Símann,“ segir Jón.

Skýringar frá Símanum voru að markaðsdeildin teldi það alls ekki ráðlegt og að slíkt myndi skaða ímynd Símans. „Svörin sem við fengum voru þau að markaðsdeildin þeirra væri viss um að það myndi skaða ímynd Símans ef að fólk gæti verslað með greiðslulausninni þeirra hjá kynlífstækjaverslun og höfnuðu því beiðninni,“ segir Jón kíminn.

Jón Þór furðar sig á viðbrögðunum Símans enda sé það hið eðlilegasta mál að fólk kaupi sér kynlífstæki:

„Við sjáum einfaldlega ekki hvernig það gæti á nokkurn hátt skaðað þeirra ímynd. Enda er nákvæmlega ekkert óeðlilegt eða rangt við það að versla sér kynlífstæki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -