Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Sindri gægist inn í hugarheim geranda sem hótaði sjálfsmorði: „Ég hrindi henni á vegginn“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég hef aldrei slegið hana en þetta er samt bara ekkert eðlilegt hjá mér,“ segir maðurinn í lokaþætti Heimilisofbeldis sem var sýndur á Stöð 2 í gær. Í þættinum er skyggnst inn í hugarheim geranda sem er enn þann dag í dag með eiginkonu sinni.

Sindri Sindrason ræddi við mann sem gengst við því að vera ofbeldismaður. Maðurinn er á fimmtugsaldri, faðir þriggja barna á unglingsaldri og viðskiptafræðingur að mennt.

Eiginkonunni kynntist hann þegar hún var á öðru ári í háskólanum en hún er einnig viðskiptafræðingur. Maðurinn segist aðallega hafa beitt eiginkonu sína andlegu ofbeldi en einnig líkamlegu og þá einna helst hrint konunni eða gripið fast í hana.

„Ég er á leiðinni út úr húsinu og hún stendur fyrir mér og ég hrindi henni á vegginn, og hún fær eymsli í kjölfarið. Ekkert við hana að sakast, bara hundrað prósent mér að kenna,“ segir maðurinn í þættinum en þar kom einnig fram að hann hafi tekið dreng þeirra eitt sinn hálstaki þegar hann var á fermingaraldri.

Hann fór í sálfræðimeðferð á stöð sem kallast Heimilisfriður og er til húsa á Höfðabakka og er hann þar enn í meðferð.

„Ég var aldrei meðvitaður að beita andlegu ofbeldi í þeirri pælingu að láta einhverjum öðrum líða illa. Ég fékk ekkert kick út úr því að fólki liði illa í kringum mig. Taktíkin var svolítið að ýta henni frá mér og svo fékk ég vellíðunartilfinningu þegar hún kemur til baka. Hún segist þá elska mig og biðst afsökunar,“ segir maðurinn og heldur áfram.

- Auglýsing -

„Það versta sem ég gerði í nokkur skipti á þessu tímabili, kannski þrisvar eða fjórum sinnum á þessu tímabili, á þessum tuttugu árum. Þá hóta ég sjálfsmorði. Líð það illa og vil fá þessa ástarjátningu út af þessari höfnun að ég hóta að drepa mig. Ég svara ekki símtölum frá henni. Ég var aldrei að fara drepa mig, ég vildi bara að hún myndi finna hvar ég væri og segjast elska mig og ganga á eftir mér. Þú getur ímyndað þér hvernig henni leið út af þessu.“

Maðurinn lagði áherslu á það í frásögn sinni að hann vildi enga athygli eða klapp á bakið fyrir að stíga fram. Hann hefði sjálfur áttað sig á því að hann væri fíflið og viljað vinna í sínum málum. Hann sæi framtíðina fyrir sér með konunni sinni og væri meðvitaður um að hún myndi ekki sætta sig við meira kjaftæði. Kona mannsins veitti leyfi fyrir því að hann segði sögu sína í þætti gærkvöldsins sem var sá síðasti í þáttaröðinni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -