- Auglýsing -
Loka þurfti Korpúlstaðaveg í morgun við Korpúlstaði og Bakkastaði vegna sinuelds. Ekki er vitað um upptök eldarins en þegar slökkvilð bar að logaði í sinu og malarjarðvegi.
Líkt og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan þá hafði eldurinn náð að breiðast talsvert út og líktist einna helst eldhafi. Það var Andri Sveinsson sem tók myndbandið.
Reykur lá yfir Víkurhverfi í morgun og voru íbúar beðnir um að loka gluggum. Slökkvistarfi lauk rétt fyrir hádegi.