Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Sjálfsvígshugsanir Þóris: „Ég velti því alvarlega fyrir mér hvort þetta væri betri staður án mín“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Leikarinn Þórir Sæmundsson segir ekki farir sínar sléttar á Facebook – er í afar þungum og dimmum þönkum; skrifar:

„Þá er búið að útiloka mig frá dating appinu Smitten. Bumble og Tinder líka. Ég má ekki hitta nýtt fólk. Þessi öpp segja öll að ég hafi brotið community guidelines og ég fæ engar frekari útskýringar á því þó ég leggi mig eftir því og reyni af veikum mætti að berjast við þetta óréttlæti. Senda einhverja tölvupósta með lamað baráttuþrek.“

Bætir við:

„Auðvitað er það óþolandi að þurfa trekk í trekk að lúta öðrum reglum en annað fólk. En það virðist vera nóg að tilkynna slæma hegðun þó hún sé ekki til staðar, og ég skal fullyrða að ég hafi hvorki stuðað neinn á þessum öppum eða verið með einhverjar ógeðslegar yfirlýsingar. Nógu brenndur er ég af internetinu til að fara varlega. En það er greinilega ekki nóg.“

Þórir segir að „ég veit ekki til hvers ég skrifa þetta. Þetta er auðvitað smámunir svona í stóra samhenginu, en einhverra hluta vegna fékk þetta mjög á mig núna. Ég er einn. Ég er búinn að vera einn allt allt of lengi. Ég velti því alvarlega fyrir mér stundum hvort þetta væri betri staður án mín. Hvort það væri kannski betra að stimpla sig út bara. Skrítið hvernig einn lítill dropi fyllir stundum mælinn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -