Þriðjudagur 19. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Sjómenn hundskamma Heiðrúnu og útgerðarmennina: „Vantraust vaxandi milli sjómanna og útgerðarmanna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjómenn eru hundóánægðir með framgöngu vinnuveitenda sinna. Þetta kom fram á þingi Sjómannasambands Íslands sem skorar á útgerðarmenn að temja sér betri samskiptahætti. 

Sjómannasambands Íslands skorar á íslenska útgerðarmenn að bæta samskipti sín við  sjómenn og samtök þeirra. Vantraust hefur farið vaxandi milli sjómanna og útgerðarmanna  undanfarin misseri og ár. Í sumum tilfellum er um algeran trúnaðarbrest að ræða,“ segir í ályktun sjómanna sem á ekki síst erindi við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem þykir vera föst fyrir í kjaramálum og óvægin í samskiptum við hetjur hafsins. 

Þeir sem veiða fiskinn eru ósáttir við atvinnurekendur sína.

Sjómenn segja að skapa þurfi  nýtt traust á milli launþega og vinnuveitenda „þannig að sjómenn og útgerðarmenn þessa lands geti talað saman á  mannlegum nótum með það að leiðarljósi að báðir komi með reisn frá þeim samskiptum“.

Og sjómenn hafa fleiri skilaboð til útgerðarmanna. Þau snúa að hvíldartíma um borð í fiskiskipum. Þess er krafist að útgerðir virð lögbundinn hvíldartíma. 

„Sjómannasambands Íslands krefst þess að útgerðir og skipstjórnarmenn virði lögbundinn rétt sjómanna til hvíldar og fari eftir þeim lögum og reglum sem gilda um  lágmarks hvíldartíma sjómanna. Einnig krefst þingið þess að mönnun fiskiskipa sé ætíð í  samræmi við þá vinnu sem fram fer um borð,“ segir í ályktun sjómanna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -