Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Sjómenn í einangrun á prestsetri – Áhafnarmeðlimir enn að veikjast

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Áhafnarmeðlimir frystitogarans Júlíusar Geimundssonar ÍS halda í Covid-einangrun í skólabyggingu að Holti í Önundarfirði. Þar var áður prestsetur. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru sjómennirnir enn að veikjast.

Nærri 20 manns af 25 manna úr áhöfn frystitogarans smituðust af Covid. Þetta kom fram á sunnudag þegar skipið leitaði hafnar eftir að veikindi höfðu herjað á áhöfnina í þá 20 daga sem skipið hafði verið í veiðiferðinni.

Allan túrinn voru menn að veikjast einn og einn. Fæstir urðu mjög veikir en þó var undantekning þar á. Það stóð á endum að þegar einn hresstist tóku næstu veikindi við.  Töldu menn í fyrstu að um væri að ræða flensu. Skipið hélt til hafnar á Ísafirði í gærdag til að taka olíu og senda alla áhöfnina í sýnatöku. Það kom svo í ljós á mánudaginn að nánast öll áhöfnin var sýkt. Talið er að smitin megi öll rekja til eins manns og veiran hafi grasserað með þessum afleiðingum undanfarnar þrjár vikur. Skipinu var þegar stefnt til hafnar aftur til að koma mannskapnum í sóttkví.

Júlíus Geirmundsson kom til hafnar á Ísafirði í fyrradag. Áhöfninni var ekki hleypt frá borði þar til ákvörðun um einangrun sjómannanna lægi fyrir. Nú herma heimildir Mannlífs að sá staður verði gamla prestssetrið í Önundarfirði. Þá var heldur ekki hægt að landa aflanum fyrr en ákvörðun sóttvarnaryfirvalda lægi fyrir. Nú hefur Matvælastofnun úrskurðað að ekki sé ástæða til að meðhöndla afla togarans með öðrum hætti en venjulega þrátt fyrir hópsmitið um borð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -