Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Sjúklingi í hjartastoppi var vísað frá bráðamóttöku: „Við erum að hafna deyjandi fólki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjúklingi í hjartastoppi var vísað frá bráðamóttöku Landspítalans vegna þess hve yfirfull hún var.

Sjúklingnum var vísað á Hjartagátt Landspítalans á Hringbraut þar sem hann hlaut meðferð.

Þetta staðfestir Helga Rósa Másdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku í samtali við Stundina.

Helga Rósa segist líta málið afar alvarlegum augum:

„Þetta er alls ekki gott, þetta er það sem bráðamóttakan á að sinna en hún var full af innlögðum sjúklingum. Það er ekki óvenjulegt að vísa sjúklingum á Hjartagáttina en af því að við vísuðum honum þangað vegna þess að bráðamóttakan var yfirfull hefur þetta verið skráð sem atvik.“

„Yfirfull bráðamóttaka gat ekki tekið á móti sjúklingi í hjartastoppi“ segir Helga Rósa; hún stað­fest­ir í sam­tali við Stund­ina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vís­að frá bráða­mót­tök­unni yf­ir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­mót­tak­an var full.

- Auglýsing -

„Við er­um að hafna deyj­andi fólki,“ seg­ir áhyggju­full­ur starfs­mað­ur Landspítalans sem Stundin ræddi við sem vildi ekki láta nafns síns getið.

Segir starfsmaðurinn að atvikið hafi verið afar óvenjulegt:

„Í fyrsta skipti í gær kom upp svakalegt atvik á spítalanum, á bráðamóttökunni að í gær var bráðamóttakan það full að hún gat ekki tekið á móti hjartastoppi.

- Auglýsing -

Númer eitt, tvö og þrjú er hlutverk bráðamóttökunnar að taka á móti bráðveiku fólki sem deyr ef það fær ekki þjónustu. Ef við getum ekki sinnt því, hvert erum við þá komin? Nú erum við komin svo langt út fyrir það að þetta sé fólk með flís eða kviðverki sem er að bíða. Við erum að hafna deyjandi fólki. Þetta eru almannahagsmunir sem eru í húfi af því að þetta gæti verið ég og þetta gæti verið þú,“ segir starfsmaðurinn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -