Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Skotárásin sat lengi í borgarstjóranum: „Þetta tók meira á mig og mína en ég þorði að viðurkenna“

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri segir að skot­árásin á heimili hans hafi haft gríðarleg áhrif á fjöl­skylduna. „Ef þú hefðir spurt mig í vor þá hefði ég líklega sagst vera að hætta. En ég ákvað að bíða með slíkar ákvarðanir.“

Borgar­stjórinn er í ítarlegu viðtali í helgar­blaði Frétta­blaðsins þar sem hann meðal annars talar um skot­árásina á heimili hans fyrr á árinu. „Skot­árásin við heimili okkar Örnu fékk mikið á okkur. Mín ósjálfráðu viðbrögð voru þá; ég er hættur, þarna eru mörkin. Ég get ekki boðið fólkinu mínu upp á þetta. Hér verð ég að draga línu í sandinn,“ og bætir hann við að þó að hann hafi fyrir löngu síðan hafa vanist pólitískri hörku, hafi þetta verið eitthvað allt annað.

Aðspurður í viðtalinu hvort hann hefði bognað svaraði Dagur því til að þetta hafi í byrjun verið fyrst og fremst áfall. „Þegar á leið fann ég hvað þetta varpaði miklum skugga yfir svo margt. Já, þetta sat í mér og lagðist á mig eins og mara. Þetta tók meira á mig og mína en ég þorði að viðurkenna á meðan að málið reis hvað hæst í vor. Og skugginn af því fylgdi okkur inn í sumarið.“

Dagur er spurður að því hvort hræðslan hafi setið lengi í honum eftir atvikið. „Hræðsla er kannski ekki rétta orðið. Ég stóð hins vegar sjálfan mig að því að horfa öðruvísi út um gluggann á heimilinu en ég hafði áður gert. Ég upplifði ákveðið varnar­leysi. Það er óhuggulegt í alla staði að vera hræddur heima hjá sér.“

Segir hann ennfremur í viðtalinu að þessi lífs­reynsla hafi verið gríðarleg viðbrigði því hann hafi, líkt og aðrir, trúað á gott og friðsamt samfélag. Reykjavík eigi að vera þekkt fyrir það að hér getur fólk umgengist og átt samtöl á jafningja­grundvelli. „Ég elska að ganga um götur og heilsa upp á fólk eða fara í heita pottinn til að ræða málin og þannig samfélagi viljum við einmitt byggja, tala hvert við annað í augnhæð, en hinn kosturinn hefur bara verið svo fráleitur, að finna ekki til öryggis á meðal fólks.“

Viðtalið birtist í heild sinni í helgar­blaði Frétta­blaðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna