Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Skúli er undir eftirliti sérfræðinga spítalans í lyflækningum: „LSH fylgist með framvindu málsins“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landspítalinn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, fyrrverandi yfirlæknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), en eins og Mannlíf greindi fyrst frá sætir hann nú lögreglurannsókn vegna gruns um að vera ábyrgður fyrir  dauða sex sjúklinga.

Skúli var sviptur lækningaleyfi sínu tímabundið, eftir niðurstöðu Landlæknis í máli konu sem Skúli setti á lífslokameðferð, er hún kom til hvíldarinnlagnar á HSS.

Skúla var síðan veitt takmarkað starfsleyfi og hóf störf á Landspítalanum, en fyrir ekki alls löngu var takmarkað starfsleyfi Skúla endurnýjað í eitt ár.

Sú ákvörðun hefur hlotið harða gagnrýni, en í yfirlýsingu Landspítalans er Skúli ekki nafngreindur, en sagt að hann hafi verið í endurmenntunar- og þjálfunarferli á Landspítalanum: Undir handleiðslu og eftirliti sérfræðinga:

„Landspítali hefur kynnt sér þær upplýsingar sem fram koma í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá því 4. nóvember og staðfestur var í Landsrétti nýlega.

Spítalinn mun fylgjast með framvindu þessa máls, bæði hjá lögreglu og embætti landlæknis, og grípa til aðgerða um leið og tilefni er til.

- Auglýsing -

Embætti landlæknis veitti viðkomandi heilbrigðistarfsmanni endurnýjun á takmörkuðu lækningaleyfi í byrjun nóvember á þessu ári og gildir það til 12 mánaða.

Á grundvelli hins takmarkað leyfis frá landlækni hefur umræddur læknir verið í endurmenntunar- og þjálfunarferli á Landspítala, undir handleiðslu og nánu eftirliti sérfræðinga spítalans í lyflækningum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -