Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Skúli var bæði landlaus og föðurlaus í æsku: „Heimurinn minn var bara mamma“

Skúli Isaaq Skúlason Qase. „Auðvitað elskuðum við hvort annað. En æska mín var stundum mjög erfið því mamma var alkóhólisti.“
Skúli Isaaq Skúlason Qase. „Auðvitað elskuðum við hvort annað. En æska mín var stundum mjög erfið því mamma var alkó­hólisti.“

Skúli Isaaq Skúlason Qase er sonur Amal Rúnar Qase sem lést í janúar. Hann ræðir hér meðal annars um móður sína baráttu­konuna, vanlíðan í gegnum árin vegna alkóhólismann sem hún barðist við, dauða hennar og sorgina. Skúli er í helgar­viðtali við Mannlíf. „Þessi sjúkdómur tók hana alveg. Gjör­samlega eyðilagði mjög sterka konu.“

Amal Rún kynntist föður Skúla, viðskipta­manninum Skúla Þorvalds­syni, og fæddist sonurinn árið 1993. Skúli yngri segir að þau hafi aldrei verið par þannig séð. „Hún ætlaði aldrei í fóstur­eyðingu. Hún sagði við mig að hún hafi ekki viljað neinn pening. Fyrstu sjö mánuðina í lífi mínu var ég ekki frá neinum stað út af því að börn sem fæðast á Íslandi fá þjóðerni móður sinnar og vega­bréfið hennar mömmu var útrunnið og svo var ekkert sómalskt sendiráð hér eða sómölsk ríkis­stjórn á þessum tíma. Þannig að hún var ekki frá neinu landi. Og ég ekki heldur.“ Skúli var landlaus.

Skúli segist vera í sambandi við föður sinn sem býr erlendis. „Samband okkar er eins og það er. Það hefur verið betra síðustu ár. Hann hringir af og til svo sem á afmælis­deginum mínum. Þegar haldið var upp á sjö ára afmælið mitt sagði mamma að pabbi væri þarna. Ég benti á hann og spurði hvort þetta væri hann. Heimurinn minn var bara mamma. Við áttum bara hvort annað. Það vorum alltaf bara við tvö. Ég á hálf­bróður sem er þremur árum yngri en mamma. Hann varð síðan mikið inn í lífinu mínu og hann var næstum því í föður­hlutverki. Hann gerði allt sem hann gat fyrir mig og hefur alltaf verið partur af lífi mínu. Og pabbi þannig lagað séð líka. Hann gerði það sem hann gat. Pabbi hjálpaði til dæmis mömmu að kaupa íbúð sem hún borgaði upp. Ég veit ekki hversu djúpt ég á að fara út í þetta. Það er helvíti mikið verk að vera foreldri en það þarf að vera present – setja plástur á hné og koma á píanó­æfingar. Þetta hefur þó alltaf verið „in the distance“.“ Ég sagði aldrei fólki á unglings­árunum að ég væri Skúlason. Ég sagði alltaf Skúli Isaaq Qase. Þetta kenndi mér hvernig foreldri ég vil vera. Ég hlakka til að verða faðir þótt ég sé ekki tilbúinn núna – ég vil fá að gefa frá mér það sem vantaði hjá mér. Það er samt ekki eins og hann elski mig ekki.“

Viðtalið í heild sinni er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto