Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Skýrsla RKÍ – Endursending barna til Grikklands er í bága við lög: „Búseta á götunni bíður þeirra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands bíður flóttabörnum sem vísað er til Grikklands líf sem er engu barni bjóðandi og að endursending til Grikklands gangi gegn hagsmunum flóttabarna; brjóti þar með í bága við lög.

Samkvæmt áðurnefndri skýrslu hefur flóttafólk í Grikklandi afar takmarkað aðgengi að húsnæði; heilbrigðisþjónustu –  menntun; félagslegri aðstoð sem og vinnu.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra

Eins og landsmönnum ætti að vera kunnugt um þá fyrirhugar, og hefur lagt fram frumvarp þess efnis á alþingi, Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra að vísa um 300 hælisleitendum úr landi; nú þegar brottvísanir eru að hefjast á ný eftir langt hlé vegna heimsfaraldursins.

Komið hefur fram að flestir þeirra sem vísa á burt úr landinu verða sendir til Grikklands, og þar eru barnafjölskyldur ekki undanskildar.

Samkvæmt lögum er íslenskum stjórnvöldum skylt að hafa hagsmuni barna í fyrirrúmi og í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þeirra.

Sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, Atli Viðar Thorstensen, sagði í samtali við RÚV að hann telji að endursending flóttabarna til Grikklands geti varla verið í samræmi við lög; en í Grikklandi er heilsu flóttabarna og velferð mjög svo ábótavant: Yfirgnæfandi líkur eru á að börnin verði heimilislaus með öllu eða búi við alls óviðunandi aðstæður:

- Auglýsing -
Flóttabörn í ömurlegum aðstæðum í Grikklandi

„Búseta á götunni er það sem að bíður þeirra oft á tíðum og aðgengi að menntun er verulega skert, þannig að við teljum það sannarlega ekki þjóna hagsmunum barna.“

Samkvæmt því sem Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sagði í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í nýlega, að fólk sem fái alþjóðlega vernd á Grikklandi búi við sömu skilyrði og Grikkir:

„Það getur farið inn á vinnumarkaðinn, það býr við sömu aðstæður og Grikkir búa við,“ sagði dómsmálaráðherra.

- Auglýsing -
Ríkisstjórn Íslands árið 2022 ætlar að senda fjölda barna í hræðilegar aðstæður í Grikklandi

Atli Viðar segir þetta kolrangt hjá Jóni:

„Ekki samkvæmt okkar mati og ekki samkvæmt áreiðanlegum skýrslum um ástandið í Grikklandi, og ekki í samræmi við frásagnir þeirra sem hafa komið hingað frá Grikklandi.“

Og bætir við:

„Þannig að við getum alveg hafnað því að staða flóttafólks á Grikklandi sé jafnfætis hinum almenna Grikkja.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -