Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Slagsmál í Breiðholti enduðu með hnífstungu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tilkynnt var um líkamsárás í Breiðholti í gærkvöldi. Ágreiningur milli tveggja manna endaði í slagsmálum. Annar þeirra var með stungusár á handlegg en vildi enga aðstoð frá lögreglu eða sjúkraliði. Maðurinn sem er grunaður um að hafa veitt áverkann handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var ein bifreiðin enn á nagladekkjum. Afskipti voru höfð af tveimur ungum mönnum í kyrrstæðri bifreið. Mennirnir viðurkenndu að hafa verið að nota fíkniefni og fundust fíkniefni hjá þeim sem annar þeirra kvaðst eiga. Þá er hann grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna.

Tilkynnt var um ölvaðan mann veitast að fólki við Sundhöllina í gærkvöldi. Maðurinn var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Þá er hann grunaður um vörslu fíkniefna og brot á lyfjalögum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -