Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Sólveig Anna ævareið vegna færslu Jóhanns Páls þingmanns: Hefur sýnt „helsjúka valdníðslu“.

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi og verðandi formaður Eflingar, er allt annað en ánægð með Facebook-færslu Jóhanns Páls Jóhannssonar, alþingismanns Samfylkingar, um nýkjörið verkalýðsmálaráð Samfylkingar. Sérstaklega fara síðustu orð hans um átökin innan hreyfingarinnar fyrir brjóst Sólveigar Önnu og félaga

„Þú flokkar semsagt viðbjóðslegan rógburð og grófa aðför að mannorði fólks í pólitískum tilgangi sem ekkert annað en „átök“?“ segir Sólveig í athugasemd við færsluna.

„Finnst þér í alvöru ekkert rangt við það að ráðist sé að heiðvirðu fólki sem hefur ekki gerst sekt um annan „glæp“ en að vinna umbeðna vinnu á meðan það jafnframt hefur „óæskilegar“ pólitískar skoðanir, líkt og Andri Sigurðsson hefur nú þurft að þola af hálfu þeirrar konu sem þú hrífst svo af?“

Andri var mikið til umfjöllunar í byrjun mánaðarins í tengslum við umfjöllun vefsíðu Eflingar. Greint var frá því að Andri hafi fengið rúmlega 20 milljónir greiddar fyrir að hanna vefsíðuna en fjölmargir gagnrýndu það, bæði vegna upphæðarinnar en einnig þar sem Andri er félagi í Sósíalistaflokknum og hefur mikið barist gegn spillingu.

Sólveig veltir því þá fyrir sér hvers vegna Jóhann er ánægður með að fá Agnieszku til liðs við sig. „Af hverju ertu „gríðarlega ánægður“ með að fá manneskju til starfa í flokknum þínum sem hefur í besta falli sýnt algjörlega yfirgengilegt dómgreindarleysi og í versta falli algjörlega helsjúka valdníðslu á sínum skamma tíma í embætti?“ segir hún.

Færsla Jóhanns

„Auðvitað tekur Samfylkingin reynslumiklu fólki úr verkalýðshreyfingunni fagnandi. Við drögum fólk ekki í dilka eða útilokum vegna átaka innan hreyfingarinnar – kemur ekki til greina. Hlakka til samstarfsins við nýja stjórn verkalýðsmálaráðs,“segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Jóhann birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann segist vera gríðarlega ánægður með nýkjörna stjórn verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar.

- Auglýsing -

Þessir tveir forsetar sem um ræðir eru þau Kristján Þórður Snæbjarnarson, 1. varaforseti ASÍ og formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar og 3. varaforseti ASÍ.

Þá voru einnig kjörin Agnieszka Ewa Ziółkowska, starfandi formaður Eflingar, Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Gylfi Þór Gíslason, fyrrverandi stjórnarmaður í Landssambandi lögreglumanna.

„Það markar ákveðin tímamót að tveir af fjórum forsetum Alþýðusambands Íslands gegni nú trúnaðarstörfum fyrir jafnaðarmannaflokk Íslands og viðeigandi að þetta skuli gerast á 106 ára afmæli Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins.“

- Auglýsing -

Undir lok færslunnar segir Jóhann að Samfylkingin útiloki ekki vegna átaka innan hreyfingarinnar. Hann tekur ekki fram um hvaða átök hann er að tala um en líklega er hann þó að vísa í átökin sem hafa átt sér stað innan Eflingar að undanförnu.

Gagnrýnir Jóhann

Sólveig er ekki sú eina sem tekur til máls í athugasemdakerfinu en fjölmargir stuðningsmenn hennar gera það einnig og hjóla í Jóhann vegna orða hans um átökin. Í einni athugasemdinni segir til að mynda að færsla Jóhanns sé „bein stríðsyfirlýsing“ á hendur „stærsta alvöru verkalýðsfélagi landsins“.

Einn meðlimur Sósíalistaflokksins veltir því þá fyrir sér hvers vegna Halldóra Sigríður var kjörin vegna þess sem hún sagði í kjölfar fréttaflutningsins um vefsíðu Eflingar. „Ef það er verið að brjóta lög er það mjög al­var­leg­ur hlut­ur,“ sagði Halldóra meðal annars um málið.

„Var Halldóra ekki að úthúða Sólveigu Önnu og Víðari um að hygla Andra fyrir vefsíðugerð?“ spyr sósíalistinn í athugasemdinni sem um ræðir. „Og ekkert á rökum reist. Og mér sýnist þetta fólk hafa þræði til gömlu hirðar Ásmundar og Salek. Þetta er ekki progressive. En það ert þú hinsvegar á Alþingi.“

Jóhann svarar athugasemdinni frá sósíalistanum og segir að jú, Halldóra Sigríður hafi tjáð sig um vefsíðu-málið í fjölmiðlum.

„Get samt alls ekki fallist á að þá verði Halldóra einhvern veginn geislavirk og persona non grata og að stjórnmálaflokkar eigi að halda henni utan grasrótarstarfs, hugnast alls ekki svoleiðis nálgun,“ segir hann svo. Þá segir Jóhann að hann gruni að Halldóra hafi ekki verið kosin vegna skoðunar hennar á Eflingu.

„Mig grunar reyndar að Halldóra hafi fengið góða kosningu vegna þess að hún er 3. varaforseti ASÍ og leiðtogi stórs stéttafélags frekar en vegna deilna um Eflingu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -