Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Sólveig Anna finnur til meðaumkunar: „Koma svo strákar, finnið þá gellu og þið getið andað léttar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Baráttukonan Sólveig Anna Jónsdóttir segir að „nú gerast menn innan Alþýðusambands Íslands mæðulegir mjög. Sú staða dregst upp að eintómir karlar stillist upp í forystusveit hins merka og sögulega fyrirbæris á þinginu sem að haldið verður í lok apríl-mánaðar.“

Hún bætir þessu við:

„Ég get ekki annað en fundið til meðaumkunar yfir karl-armæðunni. Og það sem gerir þetta allt enn meira armæðandi er að formaður Eflingar, annars stærsta verkalýðsfélags landsins með 28.000 meðlimi, tvíkjörin af félagsfólki, er svo hræðilegt fyrirbæri sem raun ber vitni.“

Sólveig Anna segir að endingu að „annars væri sú komma-lufsa mögulega brúkleg til að hjálpa köllunum að laga kynjaskiptinguna. En alas, forkvenmaðurinn sá er svo voðalega karllægur að það er ekki hægt að hugsa sér það. Við verðum bara að vona að karlarnir gefist ekki upp. Líkt og kveðið var forðum: Leitið og þér munið finna: Einhversstaðar er ókarllæg kona með veikt umboð sem lítið fer fyrir. Koma svo strákar, finnið þá gellu og þið getið andað léttar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -