Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sólveig Anna svarar óhróðursmönnum: „Vangaveltur hafa verið uppi um geðheilsu mína“

Sólveig Anna Jónsdóttir. Mynd / Hallur Karlsson
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

„Ritstjóri Morgun­blaðsins hefur til að mynda ítrekað borið á mig sakir; ég er samkvæmt honum þjófur og nokkurskonar hryðju­verkakona, eitt af því versta sem fyrir íslenska þjóð hefur komið,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, fornaður Eflingar, um þær árásir sem hún hún hafi orðið fyrir síðan hún tók við sem formaður verkalýðs­félagsins. Þar er af nógu að taka og ekki aðeins Davíð Oddsson sem ber hana sökum.

„Fyrrum dómsmála­ráðherra hefur líka nokkrum sinnum birt pistla um mig þar hann segir að ég sé „gerð út“ af karl­mönnum. Og auðvitað líka þjófur og blóðþyrst ill-kvendi,“ skrifar hún.

Kveikjan að skrifum Sólveigar eru skrif Einars Kárasonar, ævisögu­höfundar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem lýsti henni sem orðháki.

„Ég er búin að velta því fyrir mér hvaða persónu­árásir ég hafi gerst sek um á ríflega þriggja ára ferli mínum sem formaður Eflingar. Ég hef komist að þeirri niður­stöðu að Einar Kárason hljóti að vera að tala um þau skipti sem ég hef stungið niður penna eftir að um mig og/eða baráttu félags­fólks Eflingar hafa birst skrif og eða/ „fréttir“ á blaðsíðum dagblaða, bloggsíðu fyrrum dómsmála­ráðherra og víðar“.

„Þessi kerl­ing þarna, komm­ún­ist­inn“

 „Vanga­veltur hafa verið uppi um geðheilsu mína og þekktur lögfræðingur hefur komið sérstak­lega á Facebook til mín til að spyrja hvernig sé að vera svona „vanstillt“. Ég hef í leiðara Frétta­blaðsins verið ásökuð um að nota börn til að fá útrás fyrir illgirni mína. Og ég hef verið ásökuð af fínum mönnum djúpt innan úr hreyfingu vinnandi fólks um að taka börn sem gísla. Ég hef verið kölluð „þessi kerling þarna, kommúnistinn“. Ég hef verið kölluð „skaðvaldur“.

Svívirðileg laun

 Sólveig svarar svo öllum hrak­yrðunum og rökstyður innihalds­leysið hjá gagn­rýnendum á borð við Einar Kárason.

„Varðandi það að ég notist ekki við rök og stað­reyndir: Það er einfald­lega eins ósatt og hægt er að hugsa sér. Frá því að ég tók við sem formaður Eflingar hef ég undir­byggt allan minn málflutning með rökum og stað­reyndum. Ég hef aldrei haldið neinu fram um hagi félags­fólks Eflingar sem er ósatt. Ég hef þvert á móti vandað mig í því að ganga ávallt úr skugga um að innistæða sé fyrir því sem ég segi. Og hvað hef ég verið að segja: Jú, ég hef lýst þeim efnahags­lega RAUNVERULEIKA sem verka og láglaunafólki er boðið upp á í samfélagi okkar. Ég hef sagt frá aðstæðum kvenna í umönnunar­störfum og þeim svívirðilegu launum sem þeim eru greidd fyrir sitt algjör­lega ómissandi vinnuafl“.

Pistill Sólveigar Önnu í heild sinni:

Ég veit að þetta er tímasóun og hefur ekkert að segja, og mun á einhvern perverse hátt virka sem sönnun á því hvað ég er mikil tæfa fyrir þá menn sem ákveðið hafa að það sé hinn augljósi sann­leikur um eðli mitt. En ég læt samt vaða:

Einar Kárason rithöfundur segir mig tilheyra hópi fólks sem svari „öllum öðrum með stóryrðum og persónu­árásum, en rökum og stað­reyndum“. Ég er dálítið búin að hugsa um þetta í dag. Ég er enn í sumarfríi og má því ef ég vil eyða tíma mínum í gagns­lausar hugsanir um meinlokur manna útí bæ. Ég er búin að velta því fyrir mér hvaða persónu­árásir ég hafi gerst sek um á ríflega þriggja ára ferli mínum sem formaður Eflingar. Ég hef komist að þeirri niður­stöðu að Einar Kárason hljóti að vera að tala um þau skipti sem ég hef stungið niður penna eftir að um mig og/eða baráttu félags­fólks Eflingar hafa birst skrif og eða/ „fréttir“ á blaðsíðum dagblaða, bloggsíðu fyrrum dómsmála­ráðherra og víðar.

Og það hefur gerst þó nokkuð oft frá því veturinn 2018. Ritstjóri Morgun­blaðsins hefur til að mynda ítrekað borið á mig sakir; ég er samkvæmt honum þjófur og nokkurskonar hryðju­verkakona, eitt af því versta sem fyrir íslenska þjóð hefur komið. Fyrrum dómsmála­ráðherra hefur líka nokkrum sinnum birt pistla um mig þar hann segir að ég sé „gerð út“ af karl­mönnum. Og auðvitað líka þjófur og blóðþyrst ill-kvendi. Vanga­veltur hafa verið uppi um geðheilsu mína og þekktur lögfræðingur hefur komið sérstak­lega á Facebook til mín til að spyrja hvernig sé að vera svona „vanstillt“. Ég hef í leiðara Frétta­blaðsins verið ásökuð um að nota börn til að fá útrás fyrir illgirni mína. Og ég hef verið ásökuð af fínum mönnum djúpt innan úr hreyfingu vinnandi fólks um að taka börn sem gísla. Ég hef verið kölluð „þessi kerling þarna, kommúnistinn“. Ég hef verið kölluð „skaðvaldur“. Og vitiði hvað; ég hef verið kölluð svo mikið og margt á síðustu nokkrum árum að ég ætla ekki að þreyta ykkur sem þetta lesið með því að telja meira upp.

En hvað er það sem ég hef gert af mér til að mega njóta þess aftur og aftur að opna blöð og internet og lesa um það hvers­konar snar­klikkuð meri ég sé: Jú, ég var kjörin formaður Eflingar, fyrst kvenna, á róttæku, stétta­baráttu „platformi“ og ég hef reynt að gera það sem ég var kjörin til að gera; að berjast fyrir hagsmunum verka og láglaunafólks. Það er glæpurinn og fyrir hann hafa verið gerðar margar tilraunir til að refsa.

En hversvegna upplifir Einar Kárason átök mín við þau sem hafa notað völdin sín til að grafa undan trúverðug­leika mínum og baráttu láglaunafólks fyrir efnahags­legu réttlæti sem „persónu­árásir“? Hversvegna þykir honum ekki fullkomlega eðlilegt að kona svari fyrir sig þegar á hana eru bornar sakir, hún sögð vera strengja­brúða, geðveik og svo illa innrætt að hika ekki við að framkvæma gísla­tökur á börnum? Hversvegna er ég bara óttalegt „bitch“, hversvegna fæ ég ekki að njóta geislanna frá sigur-sól kvenna­baráttunnar; hvar eru lýsingarnar sem þær konur sem gera eitthvað stjóra-legt fyrstar kvenna fá að heyra um sig í samtíma okkar; flott, dugleg, sterk og svo framvegis og svo framvegis?

Af hverju á ég að taka því þegjandi og hljóða­laust að vera rægð og svívirt? Er það vegna þess að ég er ekkert nema umönnunar-kelling með grunn­skólapróf? Er það vegna þess að ég er og hef ávallt verið sósíal­isti? Hversvegna eru það „persónu­árásir“ af minni hálfu þegar ég sýni að sjálfs­virðing mín er nægileg til að ég finni hjá mér löngun til að svara fyrir mig? Af hverju á ég (ein kvenna í „stjórnunar­stöðu“?) að vera svo aum og lítils virði að ég taki við hvaða skít sem mönnum dettur í hug að kasta í mig?

 Varðandi það að ég notist ekki við rök og stað­reyndir: Það er einfald­lega eins ósatt og hægt er að hugsa sér. Frá því að ég tók við sem formaður Eflingar hef ég undir­byggt allan minn málflutning með rökum og stað­reyndum. Ég hef aldrei haldið neinu fram um hagi félags­fólks Eflingar sem er ósatt. Ég hef þvert á móti vandað mig í því að ganga ávallt úr skugga um að innistæða sé fyrir því sem ég segi. Og hvað hef ég verið að segja: Jú, ég hef lýst þeim efnahags­lega RAUNVERULEIKA sem verka og láglaunafólki er boðið upp á í samfélagi okkar. Ég hef sagt frá aðstæðum kvenna í umönnunar­störfum og þeim svívirðilegu launum sem þeim eru greidd fyrir sitt algjör­lega ómissandi vinnuafl. Ég hef reynt að varpa ljósi á þær oft á tíðum óboðlegu aðstæður sem aðfluttu verka­fólki er boðið uppá. Ég hef reynt að varpa ljósi á kjör og aðbúnað farand­verkafólks. Og svo mætti áfram telja. Og í hvert einasta skipti er ég hef tjáð mig um þessi mál hef ég stuðst við gögn frá Eflingu, frá ASÍ, skýrslur fræða­fólks, og svo auðvitað við frásagnir þess mikla fjölda sem ég hitt og talað við, félags­fólks Eflingar sem hefur deilt með mér sögum sínum og upplifunum.

Já, ég er baráttufús. Já, ég trúi af öllu hjarta á róttæka og herskáa baráttu verka og láglaunafólks fyrir réttlæti og jöfnuði. Og já, ég trúi á rétt minn til að svara fyrir mig þegar að mér eða félögum mínum er ráðist. Ég trúi því meira að segja að sá réttur sé einn sá mikil­vægasti sem við eigum; ekkert skil ég jafn illa og hugmyndina um að bjóða hinn vangann. Nema kannski trú fólks á réttinn til að arðræna annað fólk. Ekkert af þessu eru til marks um að ég sé gallað kven-eintak.

Með því að halda því fram að ég sé óheiðarleg og vanstillt hefur Einar Kárason gerst sekur um það sem hann ásakar mig um að stunda; órökstudda persónu­árás. En svona er þetta og hefur verið; það er hópur manna í þessari borg sem er svo uppsigað við mig að þeir bókstaf­lega heyra ekkert sem ég segi, sjá bara vonda komma-grýlu sem hlýtur eðli málsins samkvæmt að bulla og ljúga öllu sem hún segir.

En það segir auðvitað miklu meira um þá en mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim