Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Sólveig Anna vill sameinaða baráttu: „Enginn glæpur er stærri en sá er kona í verkalýðsbaráttu fremur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tjáir sig um mál Icelandair, Samtaka atvinnulífsins og Flugfreyjufélags Íslands í færslu á Facebook-síðu sinni. Segir hún að allir hljóti að vera þungt hugsi yfir málinu og „þá samstilltu árás á flugfreyjur sem við höfum orðið vitni að.“

„Vinnandi fólk á Íslandi hefur undanfarna daga og vikur enn á ný fengið innsýn í hugarheim meðlima auð og valdastéttarinnar, sem telja sig eigendur íslensks samfélags. Við hljótum öll að vera þungt hugsi eftir þá samstilltu árás á flugfreyjur sem við höfum orðið vitni að. Ljóst er að stéttaátökin fara harðnandi. Við verðum bæði að berjast af fullum krafti fyrir því að auðvaldið fari hér ekki sínu fram eins og því sýnist, og einnig verja með kjafti og klóm okkar áunnu réttindi. Við verðum að berjast sameinuð fyrir efnahagslegu lýðræði og réttlæti á Íslandi.“

„Svona er ástandið í kvennaparadísinni“

Sólveig Anna segir IcelandAir og Samtök atvinnulífsins hafa gengið fram af ótrúlegri hörku gagnvart FFÍ og meðlimi félagsins hafa þurft að þola kúgun og ógnarstjórnun milljón krónu-mannanna.

„Kvennastétt sem notar hjarta, hendur og heila við sína vinnu hefur þurft að þola það að vera sagt upp störfum, kastað í ruslið, vegna þess að meðlimir hennar vildu ekki hlýða skipunum frá þeim sem telja sig eigendur alls á þessari eyju,“ segir Sólveig Anna.

„Svona er ástandið í kvennaparadísinni; vinnandi konur eiga von á því að vera útmálaðar sem galnar og haldnar skemmdarfýsn, eiga von á því að vera hæddar og smánaðar fyrir það eitt að reyna að standa vörð um réttindi sín og berjast fyrir eðlilegum launum fyrir sína unnu vinnu. Í þeirri atlögu taka þátt ríkir og valdamiklir karlar, sem svífast nákvæmlega einskis. Ljóst er að kven-vinnuaflið verður að standa saman nú sem aldrei fyrr.“

- Auglýsing -

Skulda afsökunarbeiðni vegna eftirminnilegrar hörku

Sólveit Anna segir fulltrúa IcelandAir og talsmenn Samtaka atvinnulífsins skulda frugfreyjum afsökunarbeiðni, harka þeirra sé einnig til háborinnar skammar og verði lengi í minnum höfð.

„Í aðförinni að FFÍ réðust IcelandAir og SA gegn rétti vinnandi fólks á Íslandi til að bindast samtökum í stéttarfélagi og semja sameiginlega um kjör sín. Harkan sem sýnd var af þessum aðilum er til háborinnar skammar og verður lengi í minnum höfð. Fulltrúar fyrirtækisins og talsmenn SA skulda flugfreyjum afsökunarbeiðni vegna framkomu sinnar.“

- Auglýsing -

Tekur Sólveig Anna að með framkomu sinni hafi Samtök atvinnulífsins lýst yfir stríði við grunnrétt vinnandi fólks, samningsrétt þeirra, sem kostað hafa fórnir, verkfallsaðgerðir og hörð átök yfir margra áratuga tímabil.

„Þessi réttur er forsenda þeirra kjara og lífskilyrða sem náðst hafa fyrir almenning á Íslandi. Samtök atvinnulífsins hafa nú lýst yfir stríði við þennan grunnrétt. Fram hjá því er ekki hægt að líta.“

„Samningsréttur vinnandi fólks á Íslandi er hornsteinn vinnumarkaðarins. Við sem seljum aðgang að vinnuaflinu okkar treystum fyrst og fremst á samtakamátt okkar. Aðeins með því að bindast samtökum eigum við möguleika á því að standa gegn því æðisgengna valdi sem auðurinn færir eigendum atvinnutækjanna og fjármagnsins. Það er staðreynd sem við hljótum öll að skilja og viðurkenna. Að vinna þann rétt kostaði stórkostlegar fórnir fyrir íslenskt verkafólk, meðal annars verkfallsaðgerðir og hörð átök við atvinnurekendur yfir margra áratuga tímabil. Þessi réttur er forsenda þeirra kjara og lífskilyrða sem náðst hafa fyrir almenning á Íslandi. Samtök atvinnulífsins hafa nú lýst yfir stríði við þennan grunnrétt. Fram hjá því er ekki hægt að líta.“

„Auðvaldið á ekki eftirlaunasjóði okkar“

Sólveig Anna tjáir sig einnig um hugsanlega þátttöku lífeyrissjóðanna í áformuðu hlutafjárútboði IcelandAir. Segir hún vinniandi fólk ekki munu samþykkja að eftirlaunasjóðir þess verði nýttir til fjármögnunar fyrirfækja sem ráðast að grunnréttindum vinnuaflsins.

„Þrátt fyrir að talsmenn stór-kapítalsins vilji láta sem svo að lögmál auðsöfnunnar og arðráns séu náttúrulögmál er það auðvitað ekki rétt. Auðvaldið á ekki vinnandi fólk og auðvaldið á ekki eftirlaunasjóði okkar. Það er afskaplega óheppilegur misskilningur, svo vægt sé tekið til orða, að einhver skuli láta sér detta það til hugar,“ segir Sólveig Anna.

„Staðreyndin er sú að vinnandi fólk á Íslandi getur ekki og mun ekki samþykkja að eftirlaunasjóðir þess verði nýttir til að fjármagna árásir á grunnréttindi vinnuaflsins eða til fjármögnunar á fyrirtækjum sem standa í fararbroddi slíkra árása. Að forystufólk í verkalýðsfélögum bendi á þessa augljósu staðreynd er fullkomlega sjálfsagt og eðlilegt. Það er einhverskonar úrkynjun að skilja það ekki,“ segir Sólveig Anna og segir að formaður í verkalýðsfélagi eigi að sjálfsögðu að lýsa yfir algjörri andstöðu við að sjóðir launafólks séu notaðir til að gefa auðvaldinu frítt spil til að innleiða nýja og ógnvænlega tíma á Íslandi.

„Það er ekkert annað en hans eða hennar siðferðilega og pólitíska ábyrgð. Við sem erum í forsvari fyrir samtök vinnandi fólks munum ekki sætta okkur við að framferði sem stríðir gegn okkar grundvallarsjónarmiðum nái fram að ganga. Þeir þöggunartilburðir sem birst hafa okkur undanfarið og beinst hafa sérstaklega að formanni VR eru ekkert annað en árás á tjáningarfrelsi og heilbrigða samfélagsumræðu í lýðræðissamfélagi. Embættismenn hins opinbera og aðrir meðlimir borgarastéttarinnar ættu að hugsa sinn gang og velta því fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að endurskoða hugmyndir þær er náð hafa að festa svo rækilega rætur, um að hagsmunir og vilji auðstéttanna séu það sem öll skuli viðurkenna og tilbiðja, sama hvaða afleiðingar það hafi,“ segir Sólveig Anna.

Hún bætir við að hún telji það móðgun við sig og aðra meðlimi stéttar verka og láglaunafólks „að þurfa að hlusta á það úr fílabeinsturnum hinna háttsettu að ekki megi berjast gegn því að lífeyrissjóðir okkar séu nýttir í að láta óra auðvaldsins rætast. Hvað heldur fólk eiginlega að það sé?“

Sólveig Anna endar orð sín á því að hún vori að flugfreyjur séu sáttar við nýundirritaðan samning, sem skrifað var undir nú um helgina og verður kynntur félagsmönnum til samþykktar.

„Þær hafa þurft að ganga í gegnum ömurlega atburðarás. En þær hafa sýnt fádæma hugrekki, þor og þol. Ég þekki hvernig það er að lifa við árásir og skítkast fyrir það að vilja berjast fyrir hagsmunum vinnuaflsins. Það getur tekið á, enda ekkert annað en andlegt ofbeldi.“

„Það virðist því miður vera þannig á Íslandi í kreðsum þeirra sem ráða í krafti fjármagns að enginn glæpur er stærri en sá er kona í verkalýðsbaráttu fremur. Það er ógeðslegt að verða vitni að því. Ég vona af öllu hjarta að við getum staðið saman í því sem koma skal. Aðeins með því munum við geta tryggt að hagsmunir almennings verði ekki undirseldir órum, frekju og fautaskap auðstéttanna.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -