Eins og meðfylgjandi myndband sýnir þá virtust gildandi sóttvarnarreglur ekki í hávegum hafðar í gærkvöldi á mathöll Borg 29 í Borgartúni. Staðurinn var troðinn og meðal annars ekki að sjá fjarlægðartakmarkanir virtar svo dæmi séu tekin. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, er vonsvikinn.
Dyggur lesandi Mannlífs tók myndbandið og átti varla til orð yfir stöðunni á Borg29:
„Haha, þetta er nú meira ruglið. Alveg rosalegt. Engir tveir metrar þarna og allt troðið.“
Eins og sjá má er margt um manninn á mathöllin og útlit fyrir að ekkert vanti upp á stemninguna á staðnum. Hins vegar lítur út fyrir að gildandi sóttvarnarreglum hafi ekki verið framfylgt og þykir Rögnvaldi það mjög miður.„Fljótt á litið er þarna svigrúm til bætingar. Ég skil þetta alveg því það er auðvelt að gleyma sér þegar daginn fer að lengja. Það eru vonbrigði að sjá þetta. Við erum enn með takmarkanir í gildi og það er gild ástæða fyrir því. Við getum ekki slakað almennilega á og yrði ekkert nema svekkjandi fari fólk að veikjast núna þegar svona stutt er í bólusetningu. Þetta er ekki búið en það er svo stutt eftir,“ segir Rögnvaldur.