Þeir Tómas Þór Þórðarson, Eiður Smári Guðjohnsen og Gylfi Einarsson stóðu á hliðarlínunni í og hituðu upp fyrir leik Manchester City og Arsenal í gærkvöldi fyrir Símann Sport. Manchester City vann leikinn með fjögur mörk gegn einu og er liðið komið í góða stöðu í toppbaráttunni.

Það sem óvenjulegt var að þegar þremeningarnir stóðu á hliðarlínunni gusaðist skyndilega yfir þá vatn frá vökvunarkerfi vallarins. Þeir voru nokkuð snöggir að koma sér undan en Eiður Smári birti myndband af atvikinu á Instagram-síðu sinni að leik loknum. Uppákoman er heldur óvanaleg en höfðu félagarnir gaman að og hlógu áður en þeir flúðu af hliðarlínunni. Þess má geta að myndavélin sem notuð var við upptökuna varð einnig rennandi blaut en héldu þeir áfram að ræða leikinn að uppákomunni lokinni.
